Eftir að ég týndi gemsanum mínum í febrúar er ég búin að vera í stökustu vandræðum. Ég man ENGIN símanúmer ! Maður er orðinn svo háður tækninni og þegar símaskráin fór með símanum þá komst ég bara að því að ég kann ekki einu sinni númerin hjá mínum nánustu vinum og fjölskyldu. Ég gat ekki einu sinni hringt heim til MÍN ! Ég var í vinnunni og var allan dag að reyna að ná í Orra, hringdi og hringdi heim (að ég hélt). Svo um kvöldið hringdi í mig kona og sagði að það væri búið að hringja í hana margOFT í dag úr þessu númeri (semsagt mínu) - úpposí þá semsagt komst ég að því að ég kunni ekki heimasímann minn : /
Svo var Kristín svo æðisleg að lána mér einn gamlann forngrip - ætli hann sé ekki svona 8 ára gamall :Þ Ég hef ekki haft þolinmæði í að setja neitt í símaskrána. Ætli þetta sé ástæðan fyrir því að símreikningurinn minn hefur frá febrúar farið niður í varla neitt nema þjónustugjaldið :Þ Ég hringi bara í gemsann hans Orra og María því það eru einu númerin sem ég kann og ég hringi frítt í þau bæði.
Um daginn þurfti ég að hringja í vinnuna hennar mömmu, var auðvitað ekki með númerið, hugsaði smá og voilá fékk númer upp í hausinn sem ég var viss um að væri númerið hennar. Nahh þá hringdi ég á gamla vinnustaðinn hennar mömmu í númer sem ég hef ekki notað í svona 5 ár !
Ég ætla að þola þetta fram í júní en ég ætla pottþétt að kaupa mér síma áður en ég fer á Mývatn :Þ Ég vil geta talað við kallinn minn í fleiri klukkutíma (batteríið í þessum gamla dugar bara í hálftíma :Þ)
Íris með bólgna augað o°

5 comentarios:
Kannast við þetta vandamál, vægast sagt MJÖG pirrandi!!
Til HAMINGJU með vinnuna ! :) !! þetta verður örugglega alveg frábæt
Knús Óla
Heyrðu er ekkert komið sumar hjá þér eða ??? ;o)
Gleðilegt sumar sæta og takk fyrir skemmtilegan vetur ! Heyrumst fljótlega :o)

hehe, hann er fínn þessi gamli ;) Hann breytist bara í snúru síma ef það á að tala í einhvern lengri tíma. Annars vistast öll símanr á sim-kortinu en ekki í gemsanum á þessum gömlu gæjum þannig að öll símanúmerin fylgja bara með í nýja símann.
Publicar un comentario