viernes, 13 de abril de 2007

Mývatn 2007

Þá er sumarið 2007 komið á hreint

Ég verð landvörður á Mývatni frá 8. júní til 31. ágúst.

Það verður ekkert úr Venezuela ferðinni þetta árið - vonandi kemst ég bara á næsta ári :)

Í þessu umhverfi mun ég njóta sumarsins

Þetta verður draumurinn sem ég læt rætast í ár

Planið mitt að láta einn stórann draum rætast á ári hefur bara gengið nokkuð vel

2001-2002: Eyddi ári í Venezuela sem skiptinemi

2004: keypti mér íbúð :)

2005: fór hringinn í kringum landið

2006: fór á interrail um Austur og Vestur Evrópu

2007: fæ að búa úti á landi, vera í náttúrunni og láta landvarðadraum minn rætast

Áætlaðar draumarætingar næstu ára eru:

2008: Vonandi Venezuela ferð og heimsreisa með ástinni minni

2009: flytja til útlanda

Jæja best að snúa sér nú að skólabókunum - nefið verður víst þar allt til 14. maí

3 comentarios:

Anónimo dijo...

Til hamingju sæta með jobbið :o) Þetta verður án efa mjög skemmtilegt sumar!

Anónimo dijo...

Til hamingju með nýja starfið Íris mín - það krefst góðrar blöndu hugrekkis og skynsemi að geta látið drauma sína rætast, gott hjá þér ;-) -mamma-

Anónimo dijo...

Til hamingju með landvarðar starfið og þvílíkur léttir fyrir þig að sumarið sé komið á hreint :) Nú hefuru sko enga afökun að læra ekki ;)