Skrambans
Er komin hálfa leiðina með það að breyta útlitinu á síðunni en ég nenni ekki meiru. Mest langar mig að fá mér lénið www.íris.is :) er komin með leið á höftum og sérsmíðuðum útlitum sem ég kann lítið að breyta : / Er enginn snilli hérna í vefsíðugerð sem langar til að redda mér ; )
Ég er í súperfitun í vinnunni í dag, endalaust dælt í mig pönnukökum, nammi og muffins. Svo vogaði sér e-r að koma hérna inn með páskaegg og gefa okkur og þar sem ég mun meira og minna vera í vinnunni næstu 2 daga þá kemur það í minn hlut að borða það :O ég er að springa !

3 comentarios:
flott nýtt útlit - þá veistu hvað þú gerir eftir BA... nám í vefsíðugerð :-) -mamma-
MMM girnilegt páskaegg! ég hef bara fengið hænuegg í dag :)
Njóttu páskana og gangi þér vel með lærdóminn...
Kveðja Óla
hehe, mamma þín hefur rétt fyrir sér, það er alltaf verið að bjóða upp á námskeið í basic vefsíðugerð ;) Annars finnst mér þetta bara mjög flott hjá þér eins og það er núna. Eila bara mjög mjög flott. Less is more eins og frægur kall sagði fyrir mörgum áratugum.
Publicar un comentario