domingo, 4 de marzo de 2007

XanaX

Ég held ég hafi bara lært yfir mig síðustu vikuna því frá deginum sem við komum aftur hef ég varla haft í mér eirð til að setjast niður og læra. Ég hefði nú frekar átt að sleppa yfirlýsingum í gær um að nú væri sko vorið komið af því ég á afmæli eftir bara viku (ég á sko afmæli að vori til). Þegar ég svo leit út um gluggann í morgun og sá snjóinn þá var ég nú bara sár. Hann er þó farinn aftur og nú býð ég bara eftir grænu laufi og sólarljósi *ofurbjartsýn*
Næsta vika er síðan alveg pökkuð frá mánudagsmorgni til sunnudagskvölds. Það verður bara gaman en mér verður þó létt á föstudaginn þegar ég verð búin að skila af mér og flytja og taka öll verkefni, próf og ritgerðir vikunnar. Næsta laugardag fæ ég svo vonandi bara kósýdag með Orra. Mig langar mest að glíma við e-ð nýtt fjall en það þarf víst að fara eftir veðri :Þ Á sunnudaginn ætla ég þó í fína göngu, Sandakravegur, með Útivist. Hún er ansi löng, 17-18 km, en hækkunin er ekki nema 100 metrar svo þetta ætti að vera ekkert nema gaman : ) Ég held að mamma ætli með, vonandi María líka og svo ef fleiri hafa áhuga þá eru allir velkomnir með : ) Ætli maður verði ekki að halda áfram með lærdóminn, mín bíða 4 greinar um áhrif svefns á námsárangur. Siríus kveður

2 comentarios:

Anónimo dijo...

Okey commentið sem ég gerði við síðuna fyrir neðan átti að vera við þessa færslu - veit ekki alveg hvernig ég klúðraði því :P

Oooog ég á afmæli eftir ÞRJÁ daga !!!

Anónimo dijo...

Ohh meinti við færsluna fyrir neðan