Í dag sé ég eftir því að hafa flutt úr firðinum því ég myndi endilega vilja geta gefið mitt atkvæði Á MÓTI stækkuninni ! Þetta er stærsta lýti Hafnarfjarðarbæjar og þarf ekkert að verða stærra ... fyrir utan allar hinar GÓÐU ástæðurnar sem þarf varla að endurtaka enn einu sinni - Svo vil ég líka eignast hús akkúrat þarna eftir svona 15 ár þegar ég kem aftur úr námi ;)
Sjáiði bara hvað þetta er flottur staður að búa á !
Ég og Rebekka skelltum okkur upp á Helgafellið áðan :) Ekkert eins gott og að storma upp á fjall með vindinn í fangið ;) Nú er ég bara að reyna að gera upp við mig hvort ég eigi að skella mér í sturtu hérna heima eða hvort að málið sé að fara í sundlaugina og láta þreytuna renna úr sér í pottinum ...
Ég á von á svari frá Umhverfisstofnun varðandi landvarðastöðuna í byrjun næstu viku eða strax eftir páska - þá fer loks að komast e-r mynd á sumarið. Eins og mig langar ótrúlega mikið í starfið þá er ég ekkert rosalega bjartsýn þar sem ég gat ekki farið á landvarðanámskeiðið. Ég stefni á að taka það eftir næstu jól.
Í næstu viku er leiðinlegasta hátíð ársins - Páskarnir. Mér þykja þeir alveg óþolandi af mörgum ástæðum en þessar ástæður eru helstar
- Búðir eru lokaðar og ég gleymi því alltaf
- Staðirnir sem ég æfi á loka líka og ég kemst ekki á æfingu
- Maður verður að borða súkkulaði og helst mikið af því (sem er náttúrulega einn af kostunum líka ;)) - en páskaegg er súkkulaði á okurverði, ég kaupi mér frekar bara Minstrels !
- Allt dagsskipulagið fer í rúst
- Maður fer í svokallað páskafrí en eins og allir háskólanemar vita þá er það dulbúningur fyrir ofurverkefnaviku þar sem maður situr sveittur við að klára allt sem þarf að skila eftir páskana

5 comentarios:
Vúhú!!! Kosningarnar unnust án þíns atkvæðis, þó ég skilji þig alveg, ég íhugaði að flytja lögheimilið mitt til Andra ;) Og þar sem að sund er þín aðal æfing núna þá er ég nokkuð viss um að einhverjir sundstaðir verða opnir annan í páskum og við flytjum bara föstudagssundið yfir á laugardag. OK?
Victoria !!! Við unnum :D
Lýst vel á það - annars var ég að sjá að það verður opið í þremur sundlaugum alla páskana :D:D:D
Til haminju með sigurinn!! Svo þú veist ekki hvar frænka þín á heima.. Vennesla heitir bærinn og Guðrún María var ekkert að bulla, það eru ca 20 min akstur til Kristiansand. Veit ekki hvort ég á að þora að segja það en... GLEÐILEGA PÁSKA !! :)
Óla
Takk fyrir æðislegan dag í gær sæta :o)
Páska"frí" er ekki til í minni orðabók, er frekar páskalestrartími ;o) Ekki skemmtileg hátíð !
Mér finnst páskarnir yndislegir - ég er að fara í FRÍ til Akureyrar á bretti ... Bara GAMAN :)
Og svo er ég búin að heimta páskaegg frá mömmu haha :P
Publicar un comentario