viernes, 16 de marzo de 2007

Superfly

12 tíma heilsusálfræðiritgerðarmaraþoninu er alveg að ljúka og því miður er ég ekki að klára í fyrsta sæti heldur e-s staðar lengst lengst aftast - Crap ! Mig grunaði ekki að þetta yrði svona mikið vesen, bjóst við að heimildavinnan yrði bara ljúf en hún er það víst aldrei : / Common eru bara ekki gerðar neinar rannsóknir á heilbrigðu fólki ! Ég er alla veganna búin að tala helling um það í ritgerðinni hvaða áhrif hreyfing hefur á heilsu sjúkra svo það verður bara að duga : / : | Ég var að uppgötva það mér til mikillar gleði að þessi margumtalaða árshátíð verður bara hérna nánast við húsdyrnar hjá mér - Það er svona svipað langt að labba í salinn eins og fara á Hlemm :Þ High 5 fyrir því að spara leigubílinn og high 5 fyrir því að geta labbað full heim til mín ! ; ) Ég er búin að sitja svo lengi yfir ritgerðinni að orð hafa misst merkingu sína - ég get ekki lengur lesið textann en hann er svo langt frá því að vera tilbúinn :S Skil í fyrramálið kl. 8:20 takk fyrir ! Kannski að maður fái smá frest og fái að skila eftir hádegið, þá getur maður að minnsta kosti lesið yfir þetta, fengið enn stærri hnút í magann þegar ég sé hvað þetta er ferlegt og verið svo komin með vænt taugáfall þegar ég skilað ... Sounds like a plan : ) Jæja ég er nú reyndar bara að blogga til að drepa tímann - ég er svo góð að ég samþykkti að sækja kallinn inn í Hafnarfjörð kl. 1 *geisp* Skemmtilegar upplýsingar: ég þoli ekki Times New Roman ! GN

3 comentarios:

Anónimo dijo...

Ritgerðir eru aldrei easy, og maður lendir alltaf í tímaþröng með þær, alveg sama hvenær maður byrjar á þeim ! Ég reyni svo að nota allt annað en Times New Roman ef ég kemst upp með það ;o)

Endilega göngutúr fljótlega :o) Hvernig var planið, 17.mars eða 18.mars Helgafellið ?? Þú lætur mig vita þegar þér hentar :o) og kannski bara þegar snjórinn verður farinn ;o)

Anónimo dijo...

Vá ég er svo þreytt - hvernig er líðanin hjá þér ?

Anónimo dijo...

Ég steinsvaf í 10 tíma en enn sem komið er eru harðsperrurnar ekkert hræðilegar :Þ Hlakka bara til að komast í laugina á eftir og sjóða mig í heitasta pottinum !