Það er nú meiri letin í gangi hjá mér í dag - Ég þarf að gera svo margt og ég er að vinna í því að standa upp frá tölvunni og fara af stað en áður en ég geri það ætla ég að henda inn einu örbloggi :)
- Í dag ætla ég að sendast með umsóknina mína til Umhverfisstofnunarinnar :) svo það kemur líklegast fljótlega í ljós hvort ég verði ferðaskrifstofumær í sumar eða úberlandvörður :Þ Sama hvað verður þá ætla ég að reyna að kreista inn tíma til að fara til Vzla í nokkrar vikur.
- Áður en ég get gert það þarf ég að fara inn í Hafnarfjörð og sækja meðmælin mín frá Sunnu og fara upp í skóla til að prenta út umsóknina (á ekki blek hérna heima : /)
- Ég þarf líka í dag að fara á bókasafnið og skila bókum sem ég er búin að vera með í láni í 2 mánuði - framlengdi þó fyrir mánuði síðan þannig ég skulda ekki nema einn dag
- Ég skellti mér í sund í gær þrátt fyrir að sundcrewið mitt hefði algjörlega beilað ! Hmm synti heilar 12 ferðir á lúsarhraða og fór svo bara í pottinn því vöðvarnir mínir ætluðu svo sannarlega ekki að taka þátt í svona vitleysu og heimtuðu hvíld :Þ
- Megahunkið mitt átti afmæli í gær og ég vil þakka fyrir afmæliskveðjurnar :* : )
Jæja nú ætla ég að hendast af stað - taka kannski smá chill á bókasafninu og glugga í Lifandi vísindi fyrst ég hafði ekki tíma til þess á afmælisdaginn minn (það var nefnilega eiginlega orðin hefð :Þ)
Eru ekki allir búnir að skila skattaskýrslunni sinni ;) síðasti dagur á morgun ;)
Svo vil ég endilega hvetja þá sem eiga blogg sem ég les til að fara að blogga ! Mig sárvantar lesefni :Þ
Thank U and Goodbye

No hay comentarios.:
Publicar un comentario