Jæja þá er ég komin heim eftir tæpa viku í Húsafelli. Kristín og Andri voru með okkur um helgina og það var alveg stórskemmtilegt. Virku dagarnir fóru svo í maraþonlestur rétt með pásum til að skella sér í göngur og í pottinn. Ég vona að ég fái tækifæri til að fara þarna seinna að vor/sumar/hausti til skólabókalaus og þá ætla ég að storma á öll fínu göngufjöllin þarna í nágrenninu.
Ég bókstaflega sat og las frá því ég vaknaði þanga til ég fór að sofa. Steinsvaf svo flestar nætur í 9+ tíma algjörlega búin á því (samt eyddi maður dögunum sitjandi f. framan tölvuna). Síðan ég kom heim hef ég bara verið í vinnunni og verð það alveg þar til kl. 20 annað kvöld. Ég þarf svo sárnauðsynlega á því að halda að vera að læra því næsta vika er örugglega sú mest busy á allri þessari önn en ég er bara ekki með eirðina í mér til að læra : / svo er húsið fullt af fólki og það er alltaf einhver hérna sem ég þarf að sinna :S (hmmm nema núna og ég er að nota tímann í að blogga :|)
Eins og ég virðist alltaf gera þegar ég hef mikið að gera þá missi ég mig í sumarfrísplanleggingum :Þ Ég er búin að vera að bíða eftir svari frá fjölskyldunni minni í Vzla til að fá að vita hvort ég geti verið þar allt sumarið en þar sem þau eru ekkert að drífa sig í því að svara þá býst ég við að þetta sé ekki að ganga upp - Þannig nú er ég kannski bara búin að taka 180° snúning á þetta. - nýjasta hugmyndin er að sækja um sem landvörður :Þ Það má reyna, líkurnar eru held ég samt ekki miklar á að fá starfið, í fyrra sóttu 60 manns um 30 stöður : / Og þeir sem eru búnir að fara á landvarðanámkskeið (sem kostar btw 75. þús og verður held ég, ekki haldið í ár) og þeir sem hafa unnið áður ganga fyrir .... Það hefur samt lengi verið draumur að vinna sem landvörður og ég myndi helst vilja vera sem lengst upp á hálendinu eða e-s staðar afskekkt :Þ
Einhvers staðar á Laugaveginum
Annars vil ég bara minna mína nærstöddustu á að ég á afmæli eftir VIKU : )
Er í vinnunni, þarf að byrja að læra
Annars vil ég bara minna mína nærstöddustu á að ég á afmæli eftir VIKU : )
Er í vinnunni, þarf að byrja að læra

2 comentarios:
Enginn furða að þú hafir þurft að sofa!!! Þreyttur heili þarf sína hvíld eins og þreyttir fætur eða hver annar líkamspartur eftir mikla vinnu. Æðisleg sumó ferð og alveg væri ég til í að fara þarna á örlítið hlýrri tíma og labba með þér á fjöllin í kring :)
Pabbi kemur pottþétt líka og ég verð að fara að dröslast með - þessi leti gengur sko ekki !
Publicar un comentario