Þetta ár er að fara frá manni á ofurhraða ! Áramótin eru nýbúin og ég á núna afmæli eftir 3 daga og María sætapæ á afmæli bara á morgun ! Mér finnst alltaf eins og við eigum 3 daga afmæli, það hefst á afmælinu hennar Maríu og lýkur á mínu :Þ Ég er reyndar að spá í að lengja þetta í 11 daga afmælishátíð því Orri á nú afmæli 19. mars þannig ég hlýt að geta teygt afmælið mitt alveg að því :Þ
Þessi crazy vika er núna hálfnuð, búin með umræðutímann og hann gekk svona ljómandi vel og við fengum mikið hrós fyrir að vinna okkar vinnu vel :D sem er bara gaman. Svo var próf í morgun í skynjunni : / Það á eftir að koma í ljós hversu vel það gekk, en allt yfir 3,5 er betra en síðast :Þ
Nú þarf ég bara að fá andann yfir mig og hrista svo mikið sem eina ritgerð fram úr erminni þar sem henni þarf að skila á morgun :O Það ætti nú ekki að vera neitt svo erfitt, ég er byrjuð og er búin að lesa yfir allar heimildir og er svona með þetta í kollinum, hef bara ekki komið þessu á blað enn sem komið er :) Svo fyrir föstudaginn þarf ég að búa til hegðunarlýsingu á e-i hegðun sem ég vil breyta hjá sjálfri mér. Mjög skemmtilegt og hagnýtt verkefni sem tengist heilsusálfræðinni beint :) En þetta er verkefni sem tekur mánuð og inni í því eru 6 skil - semsagt nóg að gera :)
Við Orri tókum okkur til í gær og rifum fram hjólin okkar. Þau þurftu bæði að fara í viðgerð svo við brunuðum með þau upp á höfða og þau ættu að vera reddí í dag :D Kominn tími til að maður geri eitthvað sjálfur persónulega til að vinna á móti gróðurhúsaáhrifunum. Mæli með því að allir sem ekki hafa séð An Inconvinient Truth með Al Gore horfi á þá mynd ! Hugarfarsbreytingin verður bara hjá hverjum og einum og það verða allir að taka sig á og hugsa um framtíðina. Verum partur af lausninni en ekki vandamálinu ! Svo um leið og ég fæ smá öndunarrými frá skólanum ætla ég í IKEA og finna e-r lausnir varðandi endurvinnslu. Plássið hérna heima er svona af skornum skammti :Þ En ég er viss um að ég geti fundið þægilega lausn þannig að við getum flokkað ruslið á heimilinu.
Við vorum að fá nýjan fjölskyldumeðlim, Simbað sjónvarp heitir hann. Gamla sjónvarpið mitt er búið að vera í andarslitrunum undanfarin 3 ár :Þ Það kemur frá því eitthvað hátíðniískur sem lagast stundum ef maður lemur almennilega í það og eins og það sé ekki nóg þá er liturinn á skjánum þannig að hægra megin er hann gulur en vinstra megin blár :Þ Simbað sjónvarp eða Simbi imbi eins og það er líka kallað krefst allsherjar breytingar á stofunni því það er ekki hægt að koma því fyrir þar sem gamla sjónvarpið er. Það er svo ótrúlegt að við höfum ekki keypt okkur nein húsgögn frá því við fluttum, hmm nema kannski skrifborðsstóla (höfum keypt 4 svoleiðis :Þ) og við vorum svo heppin að fá þetta sjónvarp gefins, þetta er gamalt frá frænda hans Orra.
Svo vil ég endilega minna á Kiva : ) Við erum núna með 10 verkefni í gangi sem við erum að fá greidd til baka. Eitt verkefni sem var það fyrsta sem við styrktum er búið og við búin að fá endurgreitt, endurgreiðslan var svo bara notuð beint í að hjálpa næsta :Þ Mann munar svo lítið um þetta. Ég læt 25$ í hvert verkefni og styrki 2 verkefni á mánuði sem eru semsagt 50$ =3400 ikr á mánuði ! Svo fær maður peninginn til baka og ræður þá hvort þú notar hann beint til að styrkja aftur eða tekur hann bara út og færð hann aftur.
Ég er aftur orðinn stoltur farsímaeigandi, þessi síma er (vonandi) skammtímalausn :Þ Muniði ekki eftir gamla góða Nokia 3210 ;) Það var hún Kristín sem lumaði á þessum gamla. Ég er með sama númerið en ég er núna búin að missa öll númer sem voru á gamla símanum og eins og kom fram e-n tímann hérna þá mundi ég ekki einu sinni mitt eigið heimasímanúmer : /
Jæja miðað við lengdina á þessu bloggi þá er skrifandinn greinilega í húsinu þannig að það er eins gott að nýta hann í ritgerðina :Þ
Siríus út
Jæja miðað við lengdina á þessu bloggi þá er skrifandinn greinilega í húsinu þannig að það er eins gott að nýta hann í ritgerðina :Þ
Siríus út

1 comentario:
Íris ég ætla nú rétt að vona að þú munir númerið mitt ;)
Publicar un comentario