martes, 27 de marzo de 2007

Úkí - það er eitthvað undarlegt á seiði ... Í dag eru yfir 100 manns búnir að koma hingað inn, í gær komu 150. Alla vikuna er búið að vera að koma hingað inn fleira fólk heldur en venjulega og það skrýtnasta er að ekkert af þessu liði eru Íslendingar ! Ég vil fara aftur niður í mína 20-30 : ) Annars er mest lítið að frétta - rannsóknin okkar Unnar er LOKSINS komin í gang. Hópurinn minn í réttarsálfræði er líka LOKSINS kominn með efni sem hægt er að nota og ég er LOKSINS farin að lesa : ) Fyrir utan það þá var ég að uppgötva nýtt álegg, spægipylsa með kryddrönd er algjörlega málið !

4 comentarios:

Anónimo dijo...

Það toppar skoooo ekki brauð með banana - það er OG verður alltaf mitt UppáhalD ;)

Íris dijo...

hahah brauð með banana, vont flöskuvatn og nektarínur munu lifa lengi í minningunni :D

Anónimo dijo...

Ummm, nammi nammi hljómar allt mjög vel :o)

Gangi þér vel með lesturinn sæta !

Anónimo dijo...

Algjörlega sammála þér með spæjó!! Best oná stellu rúgbrauð ;)