miércoles, 21 de marzo de 2007

Grænt er gott

Nú tekur við það sem mér finnst leiðinlegast í öllum heiminum, AÐ BÍÐA. Ég er semsagt búin að skila inn umsókninni minni til Umhverfisstofnunarinnar og nú þarf ég að bíða eftir að fá af eða á ... Ég er reyndar ekkert ofur bjartsýn en held þó í vonina og krossa fingur : )
Það er reyndar alveg ótrúlegt hvað ég á erfitt með að bíða ! Bíða eftir einkunnum, bíða eftir svari og verst af öllu að bíða eftir fólki - enda tel ég það vera hinn versta galla ef að fólk ber ekki virðingu fyrir tíma annarra.
Ég er að vinna í því að koma endurvinnslumálum heimilisins í gang. Ég var voða dugleg fyrst eftir að við fluttum og tók þá allar mjólkurfernur og dagblöð og svona en þetta tók svo mikið pláss að það datt á endanum upp fyrir. Ég hætti bara að taka dagblöðin upp og henti fernunum. En nú er komið nóg af þessari sóun svo ég er að skipuleggja alla endurvinnsluna og svo þarf ég að fara í IKEA og leita að sniðugum lausnum. Það er mjög sniðugt að maður getur sent tölvupóst á sorpa@sorpa.is og fengið senda heim flokkunartöflu fyrir heimilið. Þá fær maður allar upplýsingar um það hvernig á að flokka ruslið. Ég er komin með þónokkra endurvinnsluflokka fyrir heimilið :Þ

Pappír

Sléttur pappi

Bylgjupappi

Gler

Plast

Málmur

Spilliefni

Rafhlöður

Kertaafgangar

Lyf fara til apótekanna

Gler- og plastflöskur, dósir

Þetta er náttúrulega svolítið margir flokkar svo sumt verður hérna upp í íbúð en annað niðri í geymslu. Ég er allaveganna að stefna að því að endurvinna og endurnýta meirihluta alls sem hefur hingað til farið í tunnuna. Ég ætla líka að stefna að því að endurnota meira og kíkja sem oftast í Góða Hirðinn þegar mig vantar eitthvað á heimilið - eldavélin okkar er þaðan, kostaði 8þús kall og virkar eins og gull : )

Ég get ekki ákveðið mig hvort ég eigi að læra eða taka til svo ég er hvorugt búin að gera - held að það væri bara ágætt að taka 20 mín tiltektarskorpu og fara svo í b(r)ækurnar

5 comentarios:

Anónimo dijo...

Ég vona innilega að þú fáir vinnuna í sumar :o)

Svo ertu svo dugleg ! Ættir að fá þrjú prik fyrir dugnað og framtakssemi ! Eina sem ég flokka er plast og gler, og svo fer ég með útrunnin lyf í apótekið ! Það er nú öll flokkunin á mínu heimili :o)

/// :o)

Anónimo dijo...

HAhaha b(r)ækurnar ...

Íris dijo...

heheh já aulahúmorinn er greinilega í ættinni :P

Anónimo dijo...

Ég ætla líka að vera svona dugleg að endurvinna :D Þetta er ekkert svo mikið mál.

Íris dijo...

Nákvæmlega Kristín, þetta er bara mest mál fyrst og svo held ég að þetta verði bara ekkert mál