Nú tekur við það sem mér finnst leiðinlegast í öllum heiminum, AÐ BÍÐA. Ég er semsagt búin að skila inn umsókninni minni til Umhverfisstofnunarinnar og nú þarf ég að bíða eftir að fá af eða á ... Ég er reyndar ekkert ofur bjartsýn en held þó í vonina og krossa fingur : )
Það er reyndar alveg ótrúlegt hvað ég á erfitt með að bíða ! Bíða eftir einkunnum, bíða eftir svari og verst af öllu að bíða eftir fólki - enda tel ég það vera hinn versta galla ef að fólk ber ekki virðingu fyrir tíma annarra.
Ég er að vinna í því að koma endurvinnslumálum heimilisins í gang. Ég var voða dugleg fyrst eftir að við fluttum og tók þá allar mjólkurfernur og dagblöð og svona en þetta tók svo mikið pláss að það datt á endanum upp fyrir. Ég hætti bara að taka dagblöðin upp og henti fernunum. En nú er komið nóg af þessari sóun svo ég er að skipuleggja alla endurvinnsluna og svo þarf ég að fara í IKEA og leita að sniðugum lausnum.
Það er mjög sniðugt að maður getur sent tölvupóst á sorpa@sorpa.is og fengið senda heim flokkunartöflu fyrir heimilið. Þá fær maður allar upplýsingar um það hvernig á að flokka ruslið. Ég er komin með þónokkra endurvinnsluflokka fyrir heimilið :Þ
Pappír
Sléttur pappi
Bylgjupappi
Gler
Plast
Málmur
Spilliefni
Kertaafgangar
Lyf fara til apótekanna
Gler- og plastflöskur, dósir
Ég get ekki ákveðið mig hvort ég eigi að læra eða taka til svo ég er hvorugt búin að gera - held að það væri bara ágætt að taka 20 mín tiltektarskorpu og fara svo í b(r)ækurnar

5 comentarios:
Ég vona innilega að þú fáir vinnuna í sumar :o)
Svo ertu svo dugleg ! Ættir að fá þrjú prik fyrir dugnað og framtakssemi ! Eina sem ég flokka er plast og gler, og svo fer ég með útrunnin lyf í apótekið ! Það er nú öll flokkunin á mínu heimili :o)
/// :o)
HAhaha b(r)ækurnar ...
heheh já aulahúmorinn er greinilega í ættinni :P
Ég ætla líka að vera svona dugleg að endurvinna :D Þetta er ekkert svo mikið mál.
Nákvæmlega Kristín, þetta er bara mest mál fyrst og svo held ég að þetta verði bara ekkert mál
Publicar un comentario