
Ég hef týnt og tapað ótrúlega mörgum hlutum síðustu vikurnar og það er undarlega er allt sem ég hef týnt varanlega hefur horfið þegar ég fer í sund !
Fyrst var náttúrulega buddan góða með símanum og kortunum.
Næst fór ég í sund og gleymdi sjampóinu og hárnæringunni og það var e-r búin að taka það þegar ég leitaði næst þegar ég kom. Rándýrt úr Lush : /
Svo í gær þá tók sig einhver til og rótaði í handklæðinu mínu og STAL hárnæringunni minni og sturtusápunni ! en var svo góð að skilja nánast tóma sjampóbrúsann eftir ! Djö !! Hvað er að fólki - hver stelur svona dóti ! Sturtusápuna fékk ég í afmælisgjöf, Cindy Crawford, með svo æðislegri lykt ! Ég ætla rétt að vona að karma muni bíta þessa í rassinn !
Það er semsagt kominn tími á verslunarferð í LUSH þar sem allt sem ég keypti síðast hefur bókstaflega horfið úr höndunum á mér ...
Annars er nóg að gera þessa vikuna ! Skólinn gefur manni engann grið og fyrir utan það er búið að plana margt og mikið. Kaffihúsaferðir, afmælisboð í litlu íbúðinni okkar, ég er að fara á Tapasbarinn á föstudaginn með minni heittelskuðu Maríu ; ) og eftir það er ætlar hennar heittelskaði að mæta á Hlemm og það verður kannski tekið smá Catan - Á laugardagskvöldið er svo árshátíð Kögunar :D Ég er svo með fingur krossaða og vonast til að komast í göngu á sunnudaginn (ef að þynnkan verður ekki í heimsókn :Þ)
Hvernig er það annars þegar maður fer á svona alvöru árshátíð þarf maður ekki að vera SÚPER fínn og sætur ? Er málið greiðsla og förðun eða ég bara að vera svona au natural með krullurnar út í loftið og maskarann á lofti?
Svona í lokin vil ég minna á KIVA og það góða starf sem fer fram þar. Ég er núna að styrkja 9 verkefni og þau eru öll að borga til baka á tíma. Fyrsta verkefnið sem ég tók þátt í er búið og ég fékk það endurborgað mánuðum fyrir áætlun : ) Þetta er svo einfalt mál : )
-ÍÓ-
Svona í lokin vil ég minna á KIVA og það góða starf sem fer fram þar. Ég er núna að styrkja 9 verkefni og þau eru öll að borga til baka á tíma. Fyrsta verkefnið sem ég tók þátt í er búið og ég fékk það endurborgað mánuðum fyrir áætlun : ) Þetta er svo einfalt mál : )
-ÍÓ-

2 comentarios:
Ótrúlegt hvað fólk getur verið leiðinlegt...skil ekki hvað drífur fólk áfram til að gera svona :o° Mjög leiðinlegt, en vonandi fær fólkið, það tvöfalt til baka fyrir að gera svona !
Gangi þér svo vel í skóladótinu...
Heyrumst sæta :o)
Það er náttla alltaf gaman að láta dekra við sig en það er annað mál hvort maður tímir að eyða peningum í það ;)
Publicar un comentario