miércoles, 14 de marzo de 2007

Cindy og Ég

Þá erum við búin að halda fjölskylduafmælisboðið - ótrúlegt hvað komast margir fyrir í litlu íbúðinni með smá tilfærslum og tiltekt
Voðalega verður maður líka þreyttur af því að halda boð ! Ég er algjörlega uppgefin ! Það gæti þó verið eftir sundið - Við María erum sko búnar að spíta í lófana (eða er það spýta?) og erum núna að synda 1250m, planið er að hækka þetta svo upp í 1500m. Morgundagurinn verður undirlagður ritgerðarskrifum þar sem ég þarf að hrista eina 5-10 blaðsíðna heilsusálfræðiritgerð fram úr erminni :) Það tókst svo vel í síðustu viku að þetta hlýtur að ganga líka á morgun :Þ Maður er byrjaður í heilsubreytingarverkefninu í heilsusálfræðinni og það er útskýringin á öllu sundinu :Þ Svo lofaði ég líka að mæta 2-3 í viku í jóga og jafnvel henda inn einni fjallgöngu líka ! Svo þorir maður ekki annað en að gera þetta allt saman því annars þarf maður líklegast að játa syndir sínar fyrir öllum hópnum :Þ Svo var maður ekki búin að segja hvað maður er alltaf fjári heppinn :Þ Í búið er búið (haha) að bætast við sjónvarp og bíll :Þ Fengum þetta fína oldschool sjónvarp frá frænda hans Orra, gamla okkar var svo bilað, gult öðrum megin og blátt hinum megin og svo þetta hátíðniískur sem gat látið hvern sem er missa vitið. Bíllinn kemur frá Maggý ömmu hans Orra, hún var að kaupa sér nýjann :) Þessi fína Nissan Sunny a.k.a Sóley - Svo ég er með þennan fína Hyundai Accent á sölu :D Gæðabíll, fer fyrir slikk og ég mun sjá eftir honum :'( Svona ef einhvern vantar bíl þá er hann nýbúinn að vera á verkstæði og var útskrifaður með því að það væri EKKERT að honum :Þ Mér finnst nú reyndar að Orri ætti að halda númerinu enda passar það svo vel :) Brumminn á hringferðinni 2005 ;) Jæja nóg af bílum Það er árshátíð á laugardaginn eins og ég var búin að minnast á. Ég ætla í þessum fína og flotta, svarta, vel flegna kjól og hvað haldiði ! Ég, í fyrsta skipti á ævinni, er með bólu á BRINGUNNI ! Hún er reyndar voða lítið en SAMT ! Amma hans Orra var svo góð að gefa mér nýja Cindy Crawford sturtusápu ! Ætla að hella henni í ljóta dollu áður en ég tek hana með mér næst í sund :Þ Mér dettur ekki meira í hug til að skrifa nema ER EKKI AÐ FARA AÐ KOMA SUMAR - hvað er málið með marssnjóinn ! Ég er ekki sátt, ég vil komast í opna skó og upp á fjöll !

3 comentarios:

Anónimo dijo...

Alveg týpíkst að fá bólu einhversstaðar þegar meður er að fara eitthvað fínt ! Óþolandi... En vona að hún verði á bak og burt fyrir laugardaginn !

En já ég var svo súr í gær, ég vaknaði í þessu sumarskapi, og fór ógeðslega illa klædd í skólann og var svo að drepast úr kulda og svo fór að snjóa í dag....ég er sko ekki alveg að fíla þetta !

hehehehe....en sæta vona að ritgerðarmaraþonið hafi gengið vel í dag :o)

Anónimo dijo...

Mamma verður ánægð að þú skírðir bílinn Sóley - þar sem Pabbi bannaði henni að skíra okkur Sóley ;)

Íris dijo...

haha þá er ég nú ekki svo viss um að bíllinn minn heiti Sóley :Þ

Sjáumst við í kvöld? og Aron líka?