Í næstu viku þarf ég að gera eitt það leiðinlegasta í heimi - skrá mig í námskeið fyrir næstu önn. Staðan er þannig að súper áhugaverða námskeiðið sem ég ætlaði að taka, klínísk og hugfræðileg taugasálfræði, verður EKKI KENNT ! Ég þarf því að finna bara eitthvað námskeið til að taka í staðinn því ég verð að taka 3 e til viðbótar við BA ritgerðina til að fá námslán : ( og það er ekkert áhugavert í boði :( :( :( Svekkelsi
Ég er að fara að taka BA ritgerðina sem er 8 einingar og ég hafði svo hugsað mér að taka aftur tölfræði I og próffræðina því ég fékk 5,5 í þeim báðum og hækka mig upp. Þessi tvö námskeið gilda ekkert upp í námslánin því ég er búin að taka þau nú þegar ...
Þetta er alltaf svo mikið vesen !
Hvað á ég að gera?
Möguleiki 1: Taka bara BA ritgerðina og fá mér 50-100% vinnu með og eyðileggja líklegast þannig möguleikana mína á að ná 1. einkunn
Möguleiki 2: Verða Wonderwomen og taka BA + námskeiðin tvö og fá mér 50-100% vinnu og eiga algjörlega geðveika 4 mánuði
Möguleiki 3: Taka bara eitthvað valnámskeið sem er 3 einingar fá þannig 75% námslán og taka þessi 2 námskeið aftur
Held að möguleiki 3 sé sá skynsamlegasti :( Það er mögulega eitt námskeið, taugasálfræði máls, sem ég gæti tekið. Veit samt ekki hvort það skarist um of við hugfræðina sem ég tók í haust ... Takk fyrir að lesa þetta leiðinlega blogg

2 comentarios:
Íris - spáðu í það hvað þú ert heppin að hafa val ;-) Er möguleiki fyrir þig að taka námskeið í spænsku? - mamma -
Wonderwomen hljómar vel ;o)
Publicar un comentario