Það var komið að því og loks gerðist það - hið annarlega (gerist á hverri önn) taugaáfall ...
Mín bíður mannhátt fjall af lesefni, próf, skýrsluskil, rannsóknarvinna, ritgerðarskil, verkefnavinna og fyrirlestur áður en önnin klárast .... Það er bara 27 dagar eftir af þessari önn :|
27 dagar í fyrsta lokaprófið ! Hvert í fjandanum fór tíminn !
-Íris sem verður með nefið ofan í bókunum næsta mánuðinn-

5 comentarios:
Jæks maður bara svitnar við tilhugsunina hvað er stutt eftir :o, En það þýðir víst lítið að örvænta, bara draga fram náttbuxurnar og brosið og demba sér í þetta :o) Gangi þér bara rosalega vel sæta !
Hæ Skotta :) alltaf nóg að gera hjá þér sé ég.. hlakka til að sjá þig í mai !
Knús Óla
Haha já Rebekka í jólaprófunum sat ég í sama stólnum í sömu buxunum í 3 vikur og LAS - maður er svo yndislega sætur á prófatíma :Þ
Óla ég hlakka svo til að hitta ykkur öll aftur :D Skilaðu kossum og knúsum til krakkanna frá mér :*
Úff ekki tala um taugaáfall, ég er búin að eyða helginni í það að reyna að hugsa sem minnst um það sem ég þarf að gera í þessari viku. En þetta reddast allt saman, gerir það það ekki alltaf???
Auðvitað reddast þetta allt saman, það er ekki annað hægt :Þ
Publicar un comentario