domingo, 11 de marzo de 2007

23 ára - farin að leita að gráu hárunum

Ég átti frábæran afmælisdag í gær þó að veðrið hafi komið í veg fyrir upphaflega planið mitt :) Í staðinn fyrir fjallgöngu var bara tekið innanbæjarrölt, í staðinn fyrir gömlu laugina í Hveragerði þá var bara farið í Vesturbæjarlaugina og í staðinn fyrir að fara á Við fjöruborðið á Stokkseyri þá var bara farið á Þrjá Frakka : )
Svo vil ég bara þakka þessum aragrúa sem sendi mér afmæliskveðju : * Hehe smá vandamál að með gemsanum fór náttúrulega öll símaskráin mín þannig að ég veit ekki alveg hverjir allir voru :Þ En takk :D Dagurinn í dag hefur verið mikill rólegheita og leti dagur. Ég ætlaði í 18 km langa göngu ! en veðrið var ekki að leyfa það - Í staðinn var bara annar kózíheitadagur hjá okkur Orra - Við skelltum okkur á Tækni og Vit sýninguna, svo fórum við aðeins á Súfistann í Hafnarfirði, heimsókn til tengdó og svo var farið á American Style því ég var með alveg stórfurðulega þörf fyrir hamborgara ! Siríus

2 comentarios:

Anónimo dijo...

hehe hann er sko alveg að mínu skapi gaurinn á efstu myndinni ;o) Og takk fyrir kveldið og spileríið :)

Anónimo dijo...

Gott að þú áttir góða "leti" helgi. Það hefur eitthvað legið í loftinu um helgina, kannski letilægð eins og Siggi Stormur myndi sennilega nefna það ;o) hehehe...

Vona svo að þú hafir átt góðan mánudag líka :o) Heyrumst sæta :o)