Rétt rúmlega 10 komu mamma, pabbi og María og sóttu mig og förinni var haldið á BSÍ. Alls mættu 50 manns í göngu svo rútan var alveg full. Ákveðið var vegna veðurs að ganga gönguna í öfuga átt svo við myndum ekki vera með vindinn í fangið svo keyrt var í áttina að Þingvöllum. Gangan var semsagt yfir Mosfellsheiðina.
Kl 11:30 var svo byrjað að ganga.
Hérna erum við alveg í byrjun fyrir utan rútuna: Mamma, María, ég og Pabbi
Veðrið var á mörkunum að vera gönguhæft. Það var vindur upp á 10-15 m/s sem blés á okkur allan tíma frá hægri, stanslaus skafrenningur og svona 5 stiga frost sem varð að fimbulkulda í rokinu. Við gengum í 8 tíma í snjó sem náði oftast upp fyrir miðja kálfa, mjög oft var snjórinn dýpri og annað slagið vorum við svo heppin að geta gengið á harðfenni þannig að maður sökk ekki niður en það voru alltaf bara svona 3 skref í einu : / ! Til að gera þetta sem auðveldast var gengið í halarófu og fremst fór fólkið sem var á gönguskíðum (those lucky bastards) og eftir komu þau sem tróðu leiðina.
Þetta var án efa erfiðasta ganga sem ég hef farið í ! og allt við aðstæðurnar spilaði saman í að gera þetta sem erfiðast.
Þarna fannst okkur við vera komin rosalangt, litum svo við og þá sáum við veginn þar sem við byrjuðum ekki svo langt frá : ) Gönguhraðinn var líka ansi lítill þarna í byrjun, fórum 3 km á 2 klst. Venjulega í svona færð hefðu 3 km á klst verið gott.

Allt vatn sem var hægra megin í pokunum fraus. Þær flöskur sem við gátum drukkið úr, þar fraus vatnið bara við það eitt að maður fékk sér sopa svo það myndaðist klakabrynja inn í flöskunni og stútnum. Vindurinn var svo kaldur og maður reyndi að hlífa andlitinu sem mest (það var það eina sem var ekki alveg hulið) en þegar vindurinn blés í augun á manni og maður táraðist þá frusu tárin á augnhárunum ! Ég var með vatnspoka í bakpokanum og slöngu út úr honum sem maður getur svo drukkið úr, vatnið í slöngunni var orðið gegnfrosið rétt eftir að við lögðum af stað !

Þarna er ég lengst til vinstri, pabbi og María. Þarna eins og alla ferðina stöndum við með rokið í bakið en það er ekki að sjá á myndinni. Eins og þið sjáið var fólk ekki mikið að láta skína í bert hold :Þ
Þetta var þó gott tækifæri til að prófa allan búnaðinn og ég var mjög ánægð með hann allan ! Það eina sem mig hefði vantað við þessar aðstæður voru algjörlega vindheldar lúffur því þó ég væri í göngufingravettlingum og hnausþykkum tvöföldum flíslúffum þá blés samt í gegn og mann verkjaða í fingurgómana því þeir voru svo kaldir.
Að ganga 8 klst. í snjó er erfitt. Að ganga 8 klst. í djúpum snjó er mjög erfitt. Maður þurfti allan tímann að horfa niður til að sjá hvar maður átti að stíga næst. Svo reyndi maður að stíga alltaf í sömu spor og manneskjan á undan manni því sá snjór var mest þjappaður. Ég held ég þekki núna betur legghlífarnar hjá fólkinu sem var í ferðinni frekar en andlitin á þeim !
Þetta var það sem maður sá mest allan tímann - HVÍTT
Eftir að við vorum búin að ganga í svona rúma 6 klst. var maður aðeins farin að þreytast og farið að langa eftir rútunni. Eftir það gengum við í 2 klst. í viðbót. Þá komumst við að því að rútan gat ekki komið og sótt okkur þar sem hún átti að vera svo við þurftum að labba á móti henni. Ég held að þessi síðasti spölur hafi verið það langerfiðasta, hvert einasta skref tók á og vindurinn var svo sterkur að maður átti erfitt með að halda sér á veginum. Ég fauk tvisvar útaf !
Viltu te? Síðasta matarpásan og það var svo hrikalega kalt. Þarna í bakgrunninn sést Esjan : )
Það var mikil gleði að sjá loks rútuna. Ég er sólbrennd eftir endurkastið af snjónum en alveg ótrúlega lítið þreytt í skrokknum miðað við hvað þetta tók mikið á. Eftir að hafa gengið úti í svona veðri þá skil ég hvernig fólk getur orðið úti ! Maður heldur engum áttum, það eru engin kennileiti og í svona kulda þá er erfitt að hugsa skýrt.
Myndirnar sýna engann veginn veðurskilyrðin, þegar ég kíkti á þær þá fannst mér bara líta út fyrir að ég hefði eytt gærdeginum í sól og logni :Þ
En svona til að taka þetta saman þá voru gengnir 20 km á 8 klst og 20 mínútum : ) Enginn gafst upp en ein kona þurfti þó að snúa við nánast strax í byrjun eftir að hafa fengið sykurfall, ég held að hún hafi verið sótt af sjúkrabíl. Eins og fararstjórarnir sögðu eftir ferðina að fyrst maður komst í gegnum þetta þá erum við formi til að fara í hvaða göngu sem er : )

4 comentarios:
Ó jiii mér finnst seinasta myndin æðislega flott !!! Mér fannst þetta skooo EKKI svona flott þegar ég var að labba þetta !!! :P
Enda var maður upptekinn við að bölva rútunni hahaha
Haha nákvæmlega. Mér tókst að líta upp eitt augnablik sjá sólina, rétt svo náði myndavélinni upp úr framvasanum á anorakknum án þess að fara úr flíslúffunum. Ég þurfti svo að halda myndavélatöskunni alveg upp við myndavélina til að verja hana fyrir skafrenningnum og fjárans rokinu :Þ
En hún er flott :)
Þvílíkur dugnaður :o) Alveg geggjað og ekkert smá flottar myndir, eru alveg æðislegar !
Publicar un comentario