Skyndilega er komið í mig mikið vor og sumar. Hver ástæðan er veit ég ekki, kannski tölvupósturinn sem ég fékk frá Námsráðgjöf HÍ sem bar heitið PRÓFIN NÁLGAST ! og auglýsti prófkvíðanámskeið - ég er ekki frá því að þessi póstur hafi bara búið til hjá mér prófkvíða : / :Þ Svo getur ástæðan kannski líka verið sú að nú er ég búin að afsala mér yndisstarfinu mínu á Sunnu í sumar af því ég ætla að vera á ferðinni : ( svona er að vera flakkari : |
Svo nú er ákveða hvað maður á að gera við sumarmánuðina 2007 !
Er málið að vinna frá miðjum maí til loka júlí og skella sér svo til Venezuela í mánuð?
Eða vinna bara í 2 mánuði og eyða 7 vikum í Vzla?
Eða bara vinna ekki neitt og fara bara til Venezuela í 3 mánuði undir því yfirskini að þar geti ég rifjað upp og bætt við spænskukunnáttu mína og þar með sé ég í raun í skóla í sumar? Finna svo skemmtilega sjálfboðaliðavinnu og njóta sumarsins í sól (en algjörlega án Orra :|)
Eða á maður að gefa Vzla upp á bátinn og fara t.d.
til Suð-austur Asíu (EIN því það virðist enginn vera í ævintýrahug þessa mánuðina)
Ein mynd frá Kambódíu
eða skella sér í Nordjobb? eins og þessi hoppandi ungdómur
Eða á maður bara að vera heimalingur, klífa fjöll í allt sumar, finna mér nýja vinnu (og gráta þessa æðislegu sem ég gaf upp á bátinn) vinna eins og hestur og vera svo ógeðslega rík eftir sumarið (öfugt við það að vera alls ekkert rík ef ég fer á ferðalag)
Eða á maður að gefa Vzla upp á bátinn og fara t.d.
til Suð-austur Asíu (EIN því það virðist enginn vera í ævintýrahug þessa mánuðina)
Ein mynd frá Kambódíu
eða skella sér í Nordjobb? eins og þessi hoppandi ungdómur
Eða á maður bara að vera heimalingur, klífa fjöll í allt sumar, finna mér nýja vinnu (og gráta þessa æðislegu sem ég gaf upp á bátinn) vinna eins og hestur og vera svo ógeðslega rík eftir sumarið (öfugt við það að vera alls ekkert rík ef ég fer á ferðalag)

Hmm ef ég hefði frábæran ferðafélaga þá væri S-A Asía draumaferðalagið í sumar. Venezuela er mjög hátt á listanum líka og er líklegast ódýrasta ævintýrið : / Ég er bara svo hrædd um að verða fyrir vonbrigðum því auðvitað er ekkert eins og það var : /
Ísland er "ósköp" spennandi líka en það er hætt við að maður geri lítið annað en að vinna og þar sem ég er búin að gefa upp vinnuna mína á Sunnu þá efast ég um að ég finni betri vinnu sem ég yrði ánægð með. Það yrði líka þvílík sóun á sumri að vera heima, fara ekki eitt né neitt og í þokkabót í fúllri (hvernig beygir maður orðið fúl?) vinnu ... Munið að ég á frábæran kall sem er heima að vinna ;) og er alveg til í að vinna á meðan ég skoppa um lönd - svo niðurbældi flakkarinn í mér er alveg í fullum blóma í augnablikinu
Jæja nú er ég búin að kynna fyrir ykkur alla valmöguleikana svo ég set þetta bara í kosningu - Svo svarið nú
HVAÐ Á ÉG AÐ GERA Í SUMAR?

3 comentarios:
Þegar stórt er spurt er lítið um svör ;o)
En ef ég á að segja þér alveg hvað mér finnst, þá finnst mér að þú eigir að vinna hluta sumarsins, fara svo út og leika þér í Venezula í mánuð eða 7 vikur áður en skólinn byrjar aftur ! Maður fær ekki alltaf dýrmæt tækifæri eins þetta, þannig um að gera að nýta sér þau þegar þau gefast !
Annars væri ég mest til í að skella mér með þér til Suður Asíu, en það verður að bíða betri tíma :o) Skellum okkur vonandi bara síðar !
Annars veistu best sjálf hvað þig langar mest að gera, ég er viss um að þú finnur út úr því...mikilvægast er að gera bara eitthvað skemmtilegt, hvort sem það er hér eða erlendis !!!!
knús*
Ég er líka í dálitlum sumarfríscrisis !!!
Ég myndi fara til Venezúela ALLT sumarið og þá get ég og Aron komið með þér í júní og svo fer ég (ein því Aron verður að vinna um suamrið ef Venezúela verður fyrir valinu:/) beint til Svíþjóðar í Nordjobb :)
Mér er farið að lítast dáldið vel á það plan því þá slæ ég (humm óvenjumikið af ég-um í þessum texta!:P) tvær flugur í einu höggi - eila margar :P Við ferðumst aftur saman og ég hef þá komið til Suður-Ameríku og líka lært sænsku og unnið í Svíþjóð !!!
Hljómar alveg hrikalega spennandi sumar :D
En þér er velkomið að koma með okkur Aroni til Svíþjóðar í Nordjobb ef við verðum þar í allt sumar ;)
Þér er líka alveg velkomið að koma með okkur Andra á Hornstrandir (svona aðeins til að flækja málið og bjóða uppá meiri möguleika...) Kannski þér tækist að draga Orra með þangað??? Annars langar mig alveg rosalega mikið í ævintýraferð til s-ameríku eða asíu, bara ekki í ár :/
Publicar un comentario