Ég er búin að leita mig brjálaða ! Buddan með kortunum, símanum og lyklinum að skápnum uppi á Hlöðu bara finnst EKKI !
Ég er búin að snúa öllu við hérna heima, fara upp í sundlaug og kíkja í bílinn hennar Kristínar - en e-s staðar á þessum stöðum eða á milli þessara staða var ég síðast með veskið og tók a.m.k. upp húslyklana en svo hefur hún bara gufað upp ! Það undarlega er að þegar ég fór fyrst að leita að buddunni þá hringdi ég ég gemsann og það var slökkt á honum. Eftir því sem ég man best þá var ég nýbúin að hlaða hann og hann á bara ekkert að vera rafmagnslaus :|
Ég verð semsagt gemsalaus í e-n tíma : / Ég komst líka að því þegar ég reyndi að hringja heim á laugardaginn að ég kann ekki einu sinni mitt eigið heimanúmer : O Ég hringdi nokkrum sinnum í "heim" úr vinnunni og aldrei svaraði neinn (Orri átti að vera heima) svo e-u seinna hringir kona til baka úr númerinu sem ég var búin að vera að hringja í : / Úps vitlaust númer : /
Það er samt svo skrítið að stundum týnast hlutir og algjörlega týnast en poppa svo bara allt í einu upp rétt fyrir framan mann einn daginn. Í fyrra týndi ég 1,5 lítra vatnsKÖNNU ! Svoleiðis dót fer ekki eitt né neitt, ekki út úr íbúðinni og maður fer heldur ekkert að setja hana á e-n skrítinn stað. Eftir e-r vikur opnaði ég skáp inni í stofu þar sem mestmegnis er bara geymt drasl og snyrtidót, ég var oft búin að opna hann vikurnar á undan en þennan dag lít ég inn í hann og sé þá þessa blessuðu vatnskönnu í neðstu hillunni ! Það var bókstaflega engin ástæða fyrir hana að vera þarna en þarna var hún samt !
Fyrir 3,5 ári týndi ég svo snjóbuxunum mínum. Ég hafði þennan dag gengið Fimmvörðuhálsinn með skólanum og var þá í þeim og hélt að ég hlyti að hafa gleymt þeim í rútunni því við vorum búin að snúa öllu við heima að leita að þeim. Einu og hálfu ári seinna voru þær svo bara allt í einu í fatahenginu frammi á gangi ! Á þessu 1,5 ári hafði það oft verið tæmt fyrir veislur og það er alveg 100% að þær voru ekki þarna allan þennan tíma og enginn vildi viðurkenna að hafa sett þær þarna eða hafa haft þær allan þennan tíma ....
Jebb stundum myndi ég vilja trúa á búálfa



4 comentarios:
Búálfar eru alveg örugglega til ! Hrekkja mann reglulega. En ég vona að þetta fari nú að koma í leitirnar hjá þér :o/ vont að vera gsm laus !
Reyndar vona ég að þinn búálfur sé sætari en þessi, minn er feitur með mikið hvítt skegg, löng eyru og getur örugglega flogið ;o) hehehehehe....
Ég týndi einu sinni geisladisk, var alveg í öngum mínum. Þetta var Linkin Park, uppáhaldið mitt á þeim tíma. Þannig að á endanum, 2-3 mán seinna, keypti ég bara nýjan. Örfáum dögum eftir það fann ég gamla diskinn á kommóðu á ganginu heima þar sem geng svona amk 10x á dag. Þess vegna á ég tvo Linkin Park - Hybrid Theorie diska.
En ég skal fúslega viðurkenna að það er talsvert verra að týna gemsa og buddu. Einu sinni fann ég kortaveskið mitt oní poka viku eftir að ég týndi því. Ertu búin að kíkja oní poka sem gætu legið einhversstaðar í íbúðinni?
Ég er bókstaflega búin að kíkja ofan á, ofan í, undir, yfir, fyrir aftan og framan allt sem mér dettur í hug!
Er búin að leita á öllum mögulegum og ómögulegum stöðum, allan stigaganginn, niðr'í geymslu (svona ef veskið hefði allt í einu fengið fætur og labbað þangað niður).
Búin að kíkja í alla skápa í íbúðinni, rífa allar pullur úr sófanum og er búin að gera major tiltekt í íbúðinni - það bara finnst ekki : /
Fyrir utan þetta er ég líka búin að labba á alla þá staði þar sem ég hefði getað misst það ...
En ég er samt viss um að um leið og ég kaupi nýjan síma þá poppar helvítið upp hérna á símaborðinu þar sem ég læt það alltaf þegar ég kem inn um dyrnar :Þ
Publicar un comentario