viernes, 9 de febrero de 2007

Hvalir, augabrúnir og BA

Hvað þýðir það eiginlega að "veiða hvali í vísindaskyni". Sá á mbl.is að Japanir ætla í ár að veiða 850 hrefnur og 10 langreyðar. Hvaða vísindi og rannsóknir koma svo upp úr þessum veiðum? Hvaða vísindi erum við eiginlega að stunda með okkar vísindalegu hvalveiðum? Ég er búin að taka þá miklu og merkilegu ákvörðun að safna augabrúnum (getur maður sagt þetta?) - held að vaxarinn minn hafi farið aðeins offörum. Þannig ef þú sérð illa brýnda konu á gangi í myrkri ekki vera hrædd/ur þetta er bara ég : ) Það lítur líka út fyrir að ég sé búin að ákveða eða alla veganna setja mér línu varðand BA-verkefnið mitt. Líklegast mun ég taka fyrir eitthvað tengt tjáningu tilfinninga og heilsu. Það hafa víst fundist tengsl milli þess að geta ekki/vilja ekki/kunna ekki að tjá tilfinningar sínar og einhverra heilsufarsvandamála. Mér finnst þetta bara hljóma mjög spennandi. Svo nú er ég bara að vonast eftir því að finna mér vinnufélaga ! Takmarkið er að gera alla undirbúningsvinnu núna á vorönn og geta svo byrjað strax í gagnasöfnun í haust :) Hehe mér finnst þetta verkefni líka eiga svo vel við mig þar sem ég get nú verið ansi dugleg við að tjá tilfinningar mínar : Þ Jæja Kristín er á leiðinni til mín og við ætlum að taka smá sund : )

2 comentarios:

Anónimo dijo...

Ohh áður en ég útskrifaðist þá var ég sko búin að safna augabrúnum í 3 mánuði - rosa ánægð með mig - fór svo í vax og þær hurfu gjörsamlega...Held ég hafi bara sjaldan verið eins svekkt !!!! :P

Íris dijo...

Já nákvæmlega ég fer líka í vax og mér finnst þær bara verða mjórri og mjórri!