lunes, 19 de febrero de 2007

Á Spáni er gott að djamm' og djúsa ...

Ég var bænheyrð :) Kennarinn minn í tímanum sem átti að vera í dag er veikur og var svo góður að setja tilkynningu um það inn á netið í gærkvöldi :) Ég skreið því bara upp í rúm svona 00:30 og fékk þennan fína 10,5 tíma svefn :Þ Dagurinn í dag er alveg fullpakkaður ! Ég er að fara að stökkva af stað eftir smá stund á fund vegna rannsóknarinnar sem við Unnur erum að gera í þroskasálfræði og ef að hann gengur vel þá er þetta bara komið á góða ferð hjá okkur. Svo næ ég vonandi að taka aðeins í bækurnar áður en ég fer upp í RKÍ í heimanámið :) Beint eftir það er svo sund með Maríu og Kristínu. Við erum svo fjandi duglegar, förum saman mán-mið-fös og syndum :) Svo ætlum við María aðeins að setjast niður og spekúlera í sumrinu áður en ég fer kl. 20 á námskeið hjá RKÍ í hláturjóga :Þ Semsagt algjörlega fullpakkaður dagur. Ég talaði við systur mína í Venezuela í gær og hún var nánast viss um að ég gæti verið hjá þeim alla 3 mánuðina í sumar ef að ég vildi :Þ Svo þegar ég minntist á að mig langaði svo að fá mér þá e-a sjálfboðaliðavinnu á meðan ég væri úti þá fannst henni það bara alveg frábær hugmynd og vill endilega koma með :D Það semsagt lítur út fyrir að þetta verði algjört draumasumar en ég verð þó að viðurkenna að ég er með oggusmásmáogguhnút. Ég er e-ð svo hrædd um að verða fyrir vonbrigðum, stór meirihluti þess fólks sem ég umgekkst þarna er ekki þarna lengur, voru skiptinemar, hafa dáið, flutt .... Ég geri mér þó alveg grein fyrir því að þetta verður allt allt öðruvísi en samt .. Mér finnst líka tilhugsunin um að sjá Orra ekki í 3 mánuði hrikaleg ! 3 mánuðir :| Hann er samt svo frábær og styður mig í ferðabakteríunni minni :Þ Mögulegt ferðaplan er því núna svona:
  • Við María fljúgum út saman í byrjun/miðjum júní
  • Hún ætlar að vera í 3 vikur, við ferðum eitthvað, kíkjum á Desi og svona :D
  • Svo fer hún heim í kringum mánaðarmótin júní/júlí
  • Þá byrja ég í sjálfboðaliðavinnu og mun síðan bara hafa það náðugt það sem eftir líður sumri
  • Ferðast síðan líklegast e-ð með fjölskyldunni minni úti þegar þau fara í sumarfrí
  • Kem svo heim um miðjan/lok ágúst orðin flugfær aftur í spænsku :D
  • Semsagt 2-3 mánuðir :Þ
Chao

7 comentarios:

Anónimo dijo...

Ætlaru ekki að koma við í Oxford í bakaleiðinni ;-) -mamma-

Íris dijo...

Hehe vonandi ! Það er samt enn sem komið er ódýrara fyrir mig að fljúga í gegnum BNA.

Anónimo dijo...

Mér lýst vel á þetta plan. Um að gera að skella sér bara :D

Anónimo dijo...

OMG Íris ég trúi ekki að við séum að fara til Venezúela !!!

En þú veist að ég er alltaf tilbúin að fara í MAÍ ;) Bara minna þig á það :P :)

Jájjj við erum sko duglegar að synda :) Er ekki frá því að ég er dauðþreytt í líkamanum eftir sundið í gær svo mér finnst ég eiga skilið hrísmjólk !

Og meðan ég man þá tók ég óvart cintamani peysuna þína í gær þegar ég rauk inn til þín að ná í töskuna mína......Er síminn minn heima hjá þér ?

Íris dijo...

Haha ég leitaði og leitaði að þessari peysu í gær, bölsóttaðist svo yfir því að það hyrfi allt úr höndunum á mér :Þ

En með símann þinn, þá varstu að tala í hann þegar við vorum í Nóatúni, svo hann getur ekki verið hér.

Anónimo dijo...

Hvað er þetta með ykkur systur? - Þið eigið örugglega eftir að týna hvorri annarri í Venezúela! -mamma-

Anónimo dijo...

Alveg brilljant ferðaplan :o) Þetta á eftir að vera geggjað hjá ykkur !

Þú verður svo að segja frá hvernig hláturjógað virkaði :o)

Svo er það göngutúr fljótlega, kannski á fimmtudag ? Passar það í skipulagið hjá þér ?

Kv. Bekka