viernes, 2 de febrero de 2007

Föstudagsblogg

Núnú bara ekkert búin að blogga frá því á sunnudaginn :| og mamma er farin að skamma mig fyrir bloggleysið svo ætli það sé ekki best að bæta úr þessu - Málið er ekki að það sé svo mikið að gerast hjá mér heldur frekar að ég hef bara voða lítið hér að segja... Eitt gott gerðist þó í dag - Ég talaði við kennarann sem er draumaleiðbeinandinn minn fyrir BA-ritgerðina. Það er auðvitað heilsusálfræðikennarinn minn :) Ég fæ að vinna hjá henni og er að fara næsta þriðjudag til hennar til að ræða ritgerðina, finna efni og svona :) Það er náttúrulega ekkert nema frábært :) Þarf næstu daga að grúska smá, finna hugmyndir að efnum og sjá hvort ég lendi ekki á e-u sniðugu ! Ég er búin að vera í því síðustu daga að setja lög á Ipodinn. Þvílíkur metnaður í gangi því ég er búin að gefa öllum lögunum stjörnur og er auðvitað með svaka kerfi á þessu :Þ Afraksturinn eru tæplega 1000 lög sem eru öll í uppáhaldi hjá mér :) Gleðilega helgi öll sömul, mín verður líklegast bara hin rólegasta. Það er próf í næstu viku þannig að líklegast verður bara tekið á í lestrinum :) María ! Ég sakna þín ! Komdu nú með uppástungu að skemmtilegu systrakvöldi !

1 comentario:

Anónimo dijo...

En gaman að þú sért búin að fá leiðbeinanda í ritgerðinni :o) Enn betra að þér líki vel við hana !
En hey, ég var að spá í smá labbi labbi við Gróttu eða eitthvað seinni partinn á miðvikudaginn ? ertu laus þá ??