Ohh það er kannski ekki gáfulegt að byrja á svaka tiltekt um miðnætti þegar maður þarf að vakna snemma :| Hvað þá þegar hún endist í 1,5 tíma og svo þegar maður er hættur að taka til þá er maður búinn að peppa sig svo upp að það er engin leið að sofna.
Svo loks þegar maður sofnar þá sefur maður svo órólega - ég fékk martröð um að ég þyrfti að kunna að sauma til að geta útskrifast úr HÍ !
Svo vaknaði ég einhvern tímann í nótt, viss um að ég væri bara búin að vera að brölta þarna í svona 2 tíma - nei þá var klukkan að verða 6:30 og alveg að verða komin fótaferðatími :|
Ég er veik í dag !
Hugurinn á mér er á sveimi þessa dagana. Það er svo margt sem þarf að gera hérna heima og það er svo margt sem þarf að gera í skólanum og ég virðist ekki alveg ná að jöggla þessu nógu vel saman. Ég virðist einhvern veginn alltaf þurfa að láta eitthvað sitja á hakanum til að hitt gangi. En ég er þó að reyna að bæta úr þessu núna. Ég er samt alltaf með voða samviskubit yfir því að mæta ekki alltaf í fyrirlestrana - þó að ég sé alveg búin að finna það út að ég missi ekki af það miklu... en samt finnst mér eins og ég sé þá ekki að gera allt sem ég á að vera að gera = samviskubit !
Ég er reyndar að lesa mjög áhugaverða bók núna sem heitir Spin Sisters. Hún fjallar um þær konur í Bandaríkjunum sem hafa mikil völd í fjölmiðlum. Þær stjórna fjölmiðlamarkaði kvenna, eru semsagt ritstjórar blaða, fréttakonur o.s.frv. Ég er enn bara á 2. eða 3. kafla en bókin hefur þó opnað augu mín fyrir því að konur í dag eiga að eiga voðalega bágt. Þær eiga allar að vera ósáttar með líkama sinn, vinnuna sína, börnin sín, manninn sinn = lífið sitt ! og það er alltaf verið að reyna að selja okkur lausnir. Lítið bara á fyrirsagnir blaðanna sem eru gefin út hérna, við eigum allar voðalega bágt með appelsínuhúðina og hrukkurnar sem bara við sjáum! Við eigum allar að vera með samviskubit af því börnin okkar eru svo vanrækt þegar við erum í vinnunni og svo þegar við erum heima þá er það samviskubitið yfir að vera ekki að sinna vinnunni - ! Fyrir utan allt þetta þá erum við allar að berjast fyrir að fá ME-time eins og við séum ekki við sjálfar á meðan við vinnum eða erum með fjölskyldunni?
Ég vil ekki verða samviskubitchkona. Er þetta allt saman virkilega svona erfitt?
Er bannað að skríða aftur upp í rúm?
Siríus kveður
Er bannað að skríða aftur upp í rúm?
Siríus kveður

2 comentarios:
You maid my day :o) hehehehe að kunna að sauma....óborganleg matröð ;o) En já flott bók sem þú ert að lesa, hljómar eins og eitthvað sem allar konur ættu að kynna sér ! Fæ hana að láni hjá þér við tækifæri :o)
En vona að þú sért ekki alvarlega veik sæta, en farðu vel með þig og ekki vera með neitt samviskubit, að vera með samviskubit er svo þreytandi ! Þú ert að standa þig rosalega vel og ert rosalega dugleg, mundu það bara :o)
hehe nei ekkert alvarlega veik - held að þetta sé bara vöðvabólgu og "ég fer alltof seint að sofa" sjúkdómurinn :Þ
Publicar un comentario