Er Kleenex með balsam ekki lifesaver á kveftímum ! Bjargar mér alltaf frá Rúdolfrauðanefinu :)
Ég mætti í fyrsta skipti í sjálfboðaliðavinnuna mína í dag :) Ég er í verkefni þar sem innflytjenda börn fá hjálp með heimanám einu sinni í viku. Mér fannst þetta bara alveg frábært og það var góð tilfinning að gera gagn. Hlakka mikið til að vinna í sjálfboðaliðastarfinu hjá RKÍ og ætla að taka að mér fleiri verkefni þegar ég er búin að vera þarna aðeins lengur :Þ
Þessi vika er skipulögð út í ystu æsar, hver einasta mínúta hefur verið tekin frá í eitthvað, mest af tímanum fer þó í að læra og læra og vinna upp : / Stefni á að vera á réttum stað næsta föstudag og geta þá unnið bara fyrir vikuna sem er framundan !
Vonandi er ég að fara upp í bústað þar næsta föstudag, það er að segja ef að ég á einhvern bíl sem keyrir : / Mig alveg klæjar í fingurna mig langar svo út úr bænum. Kristín og Andri verða með um helgina en svo verður vikan bara tekin í lestur, ritgerðarvinnu og meiri verkefnavinnu ... Alltaf gott að komast í burtu til að koma miklu í verk :) Ætla þó að koma heim í tæka tíð til að mæta í heilsusálfræðtíma - það er ekki séns að ég missi af einum einasta ! Hehe reyndar er ég þó ekki einu sinni byrjuð að lesa í heilsusálfræðinni :Þ Ég veit bara að um leið og ég byrja þá verður ekkert mál að lesa og lesa og lesa þannig ég ætla að vinna allt hitt upp fyrst. Svo ætla ég að setjast niður með góðan bolla af mmm jahh vatni og hella mér ofan í lífeðlisfræði heilans og líkamans og alveg missa vitið af ánægju :D
Já ég er greinilega of þreytt til að skrifa blogg af viti
góðanótt siríus sefur

1 comentario:
Þú ert alltaf svo dugleg, ég alveg dáist að þér að gefa þér tíma í sjálfboðavinnuna :o) Hljómar afskaplega gefandi og skemmtilegt !
Ég vona að þú komist í bústaðaferð. Það er möst að skipta um umhverfi allavega einu sinni í mánuði, tala nú ekki um yfir vetrarmánuðina, þegar allt er hálf grátt og guggið :o) Ég vona svo að uppvinnan gangi vel hjá þér ;o) Manni líður alltaf svo vel þegar maður er á réttum stað í námsefninu, losar við samviskubitið....
Heyrumst sæta :o) *knús* Bekka.
Publicar un comentario