Vinnudagur í dag - ef vinnu má kalla :Þ Er búin að sitja í rólegheitunum síðustu 9 tímana, læra smá, gefa tónlistinni á Ipodnum mínum stjörnur, spila Catan, tala við Orra og Visa sem vildi vita hver væri að nota kortið mitt út í London :Þ Semsagt algjör rólegheit :)
Ég safnaði kröftum í tvo klukkutíma í gær og skellti svo Jack Bauer á skjáinn. Ég veit það ekki :| er kallinn búin að missa töfrana - ég alla veganna vissi ekki hvað ég átti að halda þegar gæinn grét :| Ég verð nú samt að gefa þessu smá séns, ég meina grey kallinn búin að vera í tvö ár í kínversku fangelsi :Þ þá má maður nú vera smá sentimental ;)
Horfði svo á nýjasta þáttinn af One Tree Hill - Kristín ég get sagt þér það þér líklegast til mikillar gleði þá kom það fram í byrjun þáttarins að það væru þó nokkrir eftir :Þ
Æ auma blogg, ég ætla að taka aukavakt á morgun til að fá smá meiri pening um mánaðarmótin. Nenni sko ekki að eiga annan fátæklingamánuð :S
Hey og hvernig væri svo að kommenta smá - allt time met í aðsókn og all time met í no comments ! Þýðir ekki að læðast bara um og forvitnast ;)
Íris loaner
sábado, 20 de enero de 2007
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

4 comentarios:
daddaraddara... bara að kommenta til að kommenta... Ég er fársjúk af O.C.maniunni ;) Þarf bráðnauðsynlega að fá meira! En ég held að torrentið sé farið að virka hjá mér, nú þarf ég bara smá þolinmæði til að sækja eitthvað og byrja að horfa :D
Bara að forvitnast....híhíhí...
er svo andlaus í blogginu núna, hef ekkert að blogga um, kannski ég ætti bara að blogga um þig...hehehe.. ble þetta er svona tilgangslaust comment, bara til að kommenta eins og hjá síðasta ræðumanni. Vona samt að þú hafir það sem best og gangi vel í skólanum, heyrumst fljótlega sæta :o)
híhí það virðist vera algjört andleysi á sveimi þessa dagana :Þ
Ég held bara að andinn sé kominn aftur yfir mig ;o) hehehehe... Rigningin gerir þetta sennilega, minnir mann dáldið á vorið :o) Sem er framundan eftir nokkra mánuði !
Langaði bara að henda á þér smá kveðju sæta, heyrumst fljótlega :o)
Publicar un comentario