miércoles, 10 de enero de 2007

Síðasta einkunnin komin - svolítið mikil vonbrigði en í heildina ætti ég að taka fjórfalt heljarstökk af gleði yfir að hafa híft mig svona vel upp - Nú er takmarkið bara að halda áfram á sömu braut. Ég var búin að skrifa algjörlega hreinskilið blogg um mig, mína líðan og lífið en ég get ekki gert upp við mig hvað ég vil gera við þetta blogg. Ég hef engann áhuga á að fræða hvern sem er um mig og mitt líf en ég myndi alveg endilega vilja hleypa mínum nánustu lengra inn í mína hugarheima en ekki bara þetta yfirborðsspjall sem ég set hingað inn ... hmmm er málið að færa sig inn á læst blogg?? Kannski ég geri bara bæði, haldi áfram með þetta en búið mér til annað honest blogg :Þ Lífið er stutt - knúsið hvert annað og látið alla ykkar drauma rætast ! Farin í sund að synda mína 1100 metra

2 comentarios:

Anónimo dijo...

Æ, já stundum langar manni að blogga um eitthvað mjög persónulegt og kannski fá ráð hjá manns nánustu :o)Skil þig svo vel, hef aðeins verið að bögglast með þetta líka... hvað sem þú gerir þá er alveg möst að þú bloggir einhversstaðar allavega, svona fyrir mig ;o) svo að lokum stórt KNÚS :o)

Anónimo dijo...

Sammála síðasta ræðumanni. Amk ekki hætta að blogga, jafnvel þó það sé bara yfirborðslegt er gaman að vita hvað er að gerast hjá þér.