Þið verðið bara að afsaka bloggleysi síðustu viku - ástæðurnar eru margbrotnar :D
Þráðlausa netið heima er í algjöru rugli :/og ég vil sko helst ekki vera svo halló að vera með snúrunet :| en stundum gengur ekkert annað
Svo fékk ég kallinn minn náttúrulega heim síðasta mánudag. Ég svo sver það það var nú bara eins og við hefðum ekki sést í fleiri vikur en ekki bara 4 daga :Þ og ég hef bara varla sleppt honum út úr húsi frá því hann kom aftur ;) Það er alla veganna gaman að vera svona hamingjusamur og ástfangin enn eftir 4 ár :D
Framtakssemi síðustu viku hefur verið misskörp. Við skelltum hillum upp á vegg og það er það þá fyrsta sem fer á veggina frá því við fluttum fyrir öhömm 2 árum síðan. Bíllinn er svo líka bilaður og við Orri rúntum um á Almerunni hennar Maggýjar - Þessi kona er eins og yndislegur verndarengill : )
Skólinn er frábær, ég er í mjög skemmtilegum námskeiðum. Ég held ég hafi aldrei áður tekið önn bara með áhugaverðum námskeiðum ! Hmmm þrátt fyrir öll skemmtilegheitin og áhugann hefur ekki mikið farið fyrir framtaksseminni í lestrinum - en hey ég er þó að nálgast tímamætingamet frá því síðustu önn bara rétt eftir 2 vikur ;)
Ég fékk svo þær góðu fréttir um daginn að Per minn góði norski vinur er á leiðinni til Íslands á Airwaves. Ég fæ svo líka að sjá vinkonu mína frá Lettlandi þegar ég fer til Venezuela því hún mun flytja þangað á sama tíma og ég verð í landinu ! :D
Ég er að plana að fara út 12. júlí og koma aftur 31. ágúst. Það gera 7 vikur ! Ég veit ekki alveg hvort að það sé kannski of langt : / Duga 4 vikur ....??...
Farin að lesa um Skynjun hluta ! stuð

5 comentarios:
hey! vertu ekkert að dissa snúrunet! það er barasta mjög kúl ;)
Þú ert semsagt enn á lífi. Mikið er ég ánægð með það, var alveg komin í hnút yfir helgina að geta ekkert tjáð mig neitt ;o) hehehehe... en takk kærlega fyrir hringinguna í gær, kallinn minn er alveg komin á flug, takk takk sæta :o)
En já 7 vikur, eins gott þú getir bloggað þennan tíma, annars neyðist ég til þess að koma og leyta þig uppi einhversstaðar í útlandinu ;o)
Gangi þér vel í lestrinum og við sjáumst :o) Snjórinn loksins farinn.....
Veistu hvað er gult og segir ble ble ???
...gult ble ble...
hehehehehehehehehehehe :o)
hahahha Rebekka mín leiðist þér í skólanum ;)
Mér leiddist svo síðustu mínúturnar að ég varð grænt ble ble ;o) híhíhí....
Publicar un comentario