domingo, 28 de enero de 2007

Miss Halfway

Þið verðið bara að afsaka bloggleysi síðustu viku - ástæðurnar eru margbrotnar :D Þráðlausa netið heima er í algjöru rugli :/og ég vil sko helst ekki vera svo halló að vera með snúrunet :| en stundum gengur ekkert annað Svo fékk ég kallinn minn náttúrulega heim síðasta mánudag. Ég svo sver það það var nú bara eins og við hefðum ekki sést í fleiri vikur en ekki bara 4 daga :Þ og ég hef bara varla sleppt honum út úr húsi frá því hann kom aftur ;) Það er alla veganna gaman að vera svona hamingjusamur og ástfangin enn eftir 4 ár :D Framtakssemi síðustu viku hefur verið misskörp. Við skelltum hillum upp á vegg og það er það þá fyrsta sem fer á veggina frá því við fluttum fyrir öhömm 2 árum síðan. Bíllinn er svo líka bilaður og við Orri rúntum um á Almerunni hennar Maggýjar - Þessi kona er eins og yndislegur verndarengill : ) Skólinn er frábær, ég er í mjög skemmtilegum námskeiðum. Ég held ég hafi aldrei áður tekið önn bara með áhugaverðum námskeiðum ! Hmmm þrátt fyrir öll skemmtilegheitin og áhugann hefur ekki mikið farið fyrir framtaksseminni í lestrinum - en hey ég er þó að nálgast tímamætingamet frá því síðustu önn bara rétt eftir 2 vikur ;) Ég fékk svo þær góðu fréttir um daginn að Per minn góði norski vinur er á leiðinni til Íslands á Airwaves. Ég fæ svo líka að sjá vinkonu mína frá Lettlandi þegar ég fer til Venezuela því hún mun flytja þangað á sama tíma og ég verð í landinu ! :D Ég er að plana að fara út 12. júlí og koma aftur 31. ágúst. Það gera 7 vikur ! Ég veit ekki alveg hvort að það sé kannski of langt : / Duga 4 vikur ....??... Farin að lesa um Skynjun hluta ! stuð

5 comentarios:

Anónimo dijo...

hey! vertu ekkert að dissa snúrunet! það er barasta mjög kúl ;)

Anónimo dijo...

Þú ert semsagt enn á lífi. Mikið er ég ánægð með það, var alveg komin í hnút yfir helgina að geta ekkert tjáð mig neitt ;o) hehehehe... en takk kærlega fyrir hringinguna í gær, kallinn minn er alveg komin á flug, takk takk sæta :o)
En já 7 vikur, eins gott þú getir bloggað þennan tíma, annars neyðist ég til þess að koma og leyta þig uppi einhversstaðar í útlandinu ;o)
Gangi þér vel í lestrinum og við sjáumst :o) Snjórinn loksins farinn.....

Anónimo dijo...

Veistu hvað er gult og segir ble ble ???

...gult ble ble...

hehehehehehehehehehehe :o)

Íris dijo...

hahahha Rebekka mín leiðist þér í skólanum ;)

Anónimo dijo...

Mér leiddist svo síðustu mínúturnar að ég varð grænt ble ble ;o) híhíhí....