Sumir dagar eru öfugsnúnir.
Ég skreið fram úr í morgun með miklum aga, ógeðslega þreytt og alveg skítkalt í herberginu. Henti mér í föt, skellti svo í mig seríósi og fór út 10 mín áður en tíminn átti að byrja. Byrjaði á því að finna bara ekki bílinn minn : / en eftir mikið rölt þá kom hann þó í leitirnar (var bara nákvæmlega þar sem ég skildi hann eftir í gærkvöldi !). Settist svo inn og startaði og brummi fór í gang eeeennn svo bara dó hann - startaði honum aftur og já bílinn er bilaður : / Ég orðin of sein í tíma - gafst upp, fór aftur inn og skreið upp í rúm.
Eftir að hafa reynt að sofa í klst með lélegum árangri þar sem síminn hans Orra snoozaði á 10 mínútna fresti ! þá rak Orri mig á fætur til að koma með sér út að tékka á bílnum. Pirringurinn búinn að ná nýjum hæðum, aftur á fætur, út í kuldann og bíllinn enn bilaður *argh*
Aftur inn og þá er e-r ógeðsleg lykt í íbúðinni sem við viljum kenna niðurfallinu um *iúúú*
Núna er klukkan orðin 14:30 og ég er ekki enn búin að byrja daginn - Í dag er ég Íris öfugsnúna, ekkert búin að læra, missti af fyrsta tímanum í skynjunarsálfræði, grumpy as hell og mig langar svo fokkin mikið í súkkulaði ! Heilsusálfræðibókin kemur ekki fyrr en eftir 2-3 vikur og Skynjunarbókin er einhvers staðar á ferðalagi ! Downloadið er svo hægt að það er hátíð ef það nær 5 KB/s og því hef ég ekkert að horfa á í pirringnum mínum. Svo er Orri að fara til útlanda á morgun og ég er abbó.
Farin út í bakarí að kaupa sólblómabrauð !

4 comentarios:
anda inn anda út - á svona degi myndi ég alveg réttlæta það að fá stórt súkkulaði stykki. O.C á morgun, ekki satt? C ya!
OC date á morgun :)
Göngutúr og Tromp gerði alveg málið :Þ
Iss það er nú ekki einu sinni hægt að vorkenna þér - þú gast nú barasta tekið strætó í skólann :-Þ
Lenti í þessu á mánudag - en splæsti þá reyndar í leigubíl þar sem ég átti að fara að halda erindi og svo voru auðvitað öll tæknimál í ólagi í fyrirlestrarsalnum - en það er nú ekkert óvenjulegt. Og með niðurfallið, láta renna mikið vatn og svo matarolíu.
Mamma grimma (að gefa þér spark í rassinn):-)
hahaha þegar ég skrifaði þetta í dag þá hugsaði ég með mér að mamma myndi pottþétt mæta og sparka í rassinn á mér :Þ Sem hún gerði ! ;)
Ég hefði átt að taka taxa í morgun ! Það getur nú ekki verið svo dýrt að fara héðan upp í HÍ svona einu sinni :Þ
Mamma best :*
Publicar un comentario