lunes, 1 de enero de 2007

fyrsta blogg 2007

Áramótin voru bara alveg ágæt þrátt fyrir allt. Þessi vinnudagur er hins vegar búinn að vera eins og heilt ár og sérstaklega núna síðasta hálftíminn *geisp* 35 mínútur eftir og þá get ég farið heim að sofa :Þ Ég ætla svo að reyna að taka íbúðina mína í gegn í dag, taka til og þvo - kaupa svo í matinn við fyrsta tækifæri þegar búðirnar eru opnar og koma mér svo að því að gera allt sem ég hef sett á "geri það í jólafríinu" listann - t.d. fúa flísarnar í eldhúsinu :Þ Ég verð alltaf svolítið fegin svona þegar jólin og áramótin eru yfirstaðin - áreitið í kringum mann minnkar svo. Ég verð sérstaklega ánægð þegar búðir fara aftur að hafa venjulegann opnunartíma, alveg þoli ekki svona daga þar sem allt er lokað eða bara opið rétt nokkrar klst. Jæja 30 mín eftir - ætla að fara að leika mér á skissa.is

3 comentarios:

Anónimo dijo...

Velkomin aftur heim sæta og gleðilegt nýtt ár :o) Er svo ánægð að sjá að þú sért kominn aftur ! Sjáumst vonandi fljótlega :o)

Anónimo dijo...

Já það var bara kósý hjá okkur "sjúklingunum" yfir áramótin - og takk fyrir í gær, ég var frekar slappur gestgjafi (bókstaflega) verð að bæta það upp seinna :-)
Kveðja, Mamma með pestina

Anónimo dijo...

Gleðilegt ár!!!