martes, 9 de enero de 2007

Engin einkunn enn en ég er núna búin að banna sjálfri mér að kíkja á Ugluna - það getur bara ekki verið gott fyrir geðheilsuna að kíkja þangað inn á kortersfresti :Þ Mér tókst að multitaska í morgun eins og ég geri best og litaði á mér augnhárin Á MEÐAN ég horfði á Despó ;) Er núna svaka sátt við augnhárin en man lítið hvað gerðist í þættinum *hugs* Svona margra daga aðgerðaleysi á mjög illa við mig svo aðgerða er þörf - Á morgun ætla ég Í GEYMSLUNA :O Jebb telja flöskur og hlaða drasli í bílinn og keyra með það á Sorpu. Ætla að sjá hvort ég finni ekki eitthvað til að gefa í Rauðakrossgáminn eða Góða hirðinn. Ég gleymdi nú alveg að minnast á það áðan að við Orri erum í dag búin að búa saman í 2 ár :D og fyrir stuttu síðan áttum við 4 ára afmæli :Þ Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt :) Mér finnst ég vera nýútskrifuð úr framhaldsskóla og á þessu ári mun ég klára BA gráðuna mína :Þ Jæja ætla að taka smá tíma í að skoða allar geggjuðu göngurnar hjá Útivist í ár og svo er það bara jóga og OCkozy í kvöld :D

1 comentario:

Anónimo dijo...

Til hamingju með árin 2 og 4 :D
Ég skil svo algjörlega hvað þú átt við með tímann, það er svo margt búið að gerast en samt er eitthvað svo stutt síðan maður var í framhaldsskóla!