jueves, 11 de enero de 2007

NaNo

Ef heimsbyggðin væri 100 manna þorp þá væru: 57% asískir 21% evrópskir 14% amerískir (Norður og Suður Ameríka) 8% afrískir 52% væru konur 48% væru karlar 70% hefðu dökkan hörundslit 30% hefðu ljósan hörundslit 89% væru gagnkynhneigðir 11% samkynhneigðir 90% væru rétthentir 10% væru svo heppnir að vera örvhentir 6 manns myndu eiga 59% af auði heimsins og þeir væru allir frá Bandaríkjunum ! 70% hefðu enga menntun ! 50% væru vannærðir ! 1 manneskja myndi deyja í dag og 2 myndu fæðast ! 1 manneskja ætti tölvu ! 1 manneskja myndi hafa æðri menntun ! Veltu því einnig fyrir þér að:
  • Ef þú vaknaðir við fulla heilsu í morgun ertu lánsamari en sú ein milljón jarðarbúa sem mun ekki lifa af næstu viku !
  • Ef þú hefur aldrei þurft að búa við stríðsátök, fangelsun eða hungur ertu lánsamari en 500 milljónir manna í heiminum !
  • Ef þú getur stundað trú þína án ótta við fangelsun eða dauða ertu lánsamari en 3 milljónir manna í heiminum !
  • Ef að það er matur í ískápnum þínum, þú átt föt og skó, þú átt rúm og þak yfir höfuðið þá ertu ríkari en 75% mannkyns !
  • Ef þú átt bankareikning, peninga í veskinug þína og smáaur í bauknum þá tilheyrir þú þeim 8% sem telst vera að gera það gott !
Ef að þú gast lesið ofangreint þá býrði við blessun því að
  • Þú tilheyrir ekki þeim 200 milljónum sem kunna ekki að lesa
  • og ... þú átt tölvu !
Þetta fékk ég sent í tölvupósti í dag frá einni góðri frænku minni :*, hef séð svona áður en mér þykir þetta alltaf jafngott til að minna mann á þann lúxus sem við búum við hér á Íslandi.Ég hef þó engar heimildir á bak við þessa tölfræði en þó að þessar tölur væru ekki alveg réttar þá vitum við öll að flestir í heiminum hafa það verra en við ! Hættum öllu stressi, skafið af ljósunum ykkar og ekki aka yfir á rauðu þó að það sé snjókoma (sumir virðast halda að umferðareglur gildi ekki ef að það er snjór á götunum !) Ég taldi 700 flöskur og dósir úr geymslunni minni í gær og í dag rúllaði ég á Sorpu (tvær ferðir) og fékk 7000 kr takk fyrir :D Seinni ferðina fór ég svo með dót í Góða hirðisgáminn og annað sem var bara rusl. En niðurstaðan er skipulögð geymsla með nógu af lausu plássi
Jæja er ekki best að enda þetta eins og tölvupósturinn með 100 manna þorpinu gerði:
Sinntu starfi þínu eins og þú þarfnist ekki peninganna. Elskaðu eins og þú hafir aldrei verið særður, Dansaðu eins og enginn sjái til þín. Syngdu eins og enginn geti heyrt til þín og lifðu eins og jörðin sé himnaríki : )
ÍÓ sem er að fara á Little Miss Sunshine

2 comentarios:

Anónimo dijo...

Maður þyrfti nú að minna sig á þetta nokkrum sinnum á dag, það eru allt of margir hlutir í kringum mann sem maður tekur sem sjálfsagðan hlut ! Flott blogg hjá þér sæta. Þú verður svo að segja mér hvernig þér leist á Little Miss Sunshine á morgun, hlakka til að sjá framan í þig ! Eigðu góðan dag sæta :o)

Anónimo dijo...

Já það var eimitt stelpa í vinnunni að segja mér að venjuleg mánaðarlaun á Kúbu eru um 12 dalir en skór kosta um 70 dali !!!


En já næsta færsla verður að vera um "hvernig little miss sunshine var" eða kannski tölum við bara um hana í matarboðinu í kvöld hahahah