Ohhh algjört blue screen crash og bloggið mitt hvarf : ( og ég er bara oooof þreytt og syfjuð til að endurhugsa allt sem ég skrifaði svo hér kemur hið klassíska punktablogg
- Fór í heilsusálfræði í morgun og framtíð mín er ráðin - Mitt fullkomna áhugamix :)
- Er búin að nota það sem afsökun fyrir því að lesa ekki að mig vantar enn bækur fyrir tvö fög. Önnur bókin er týnd einhvers staðar á leiðinni frá útlöndum og hin kemur ekki fyrr en eftir 2 vikur á bóksöluna : /
- Fór í geggjað (sársaukafullt) nudd hjá Andra áðan :) Ótrúlegt hvað það er gott að fara í nudd þó að það sé verið að nudda úr manni vöðvabólgu.
- Ég er of þreytt til að gera nokkurn skapaðan hlut, get ekki einu sinni horft á 24 bara af því ég held að það sé of orkukrefjandi - Jack Bauer er bara svo sexy
Eru ekki fleiri en ég hérna Pulp-arar :Þ Common People, Pencil Skirt, Sorted for E'z and Wizz ... ???
Kallinn enn út í löndum, ekkert tré datt á hann í gær þrátt fyrir óveður og ég bara tel niður dagana (alla þrjá) þangað til hann kemur heim. Hmm ótrúlegt í nótt þá svaf ég án þess að vakna í hvert einasta skipti sem ég breytti um stellingu - ég held við þurfum stærra rúm !
Á þriðjudaginn er ég að fara að efna 2. hluta Hluti af lausninni, ekki vandamálinu markmiðinu mínu. Ég skráði mig fyrir jól hjá Rauða Krossnum í sjálfboðaliðastarfið þeirra og ég er að fara á þriðjudaginn í viðtal til að finna hvaða þjónustu ég vil taka að mér og svona :Þ
SirÍus (SuÍris)

2 comentarios:
Ég fíla pulp :D Og raunverulega alla tónlist frá '95, '96 og '97. Man samt ekki mörg lög með þeim... en það er ekkert nýtt. en sérstaklega common ppl og eitthvað annað lag sem ég get ekki kallað fram í öjeblikket en ég man bara að ég fíla... :/
hehe já það er bara eitthvað við þessi lög sem kemur manni í svona fílguud fíling :Þ
Publicar un comentario