Í dag skellti ég mér í sund þrátt fyrir að finnast ég vera næstum 100 tonn og alveg gríðarlega löt. Ég var svo næstum því drukknuð í hláturskasti þegar ég byrjaði að synda því ég sver það að ég var 100 tonn og var að sökkva og fór alveg ískyggilega hægt. Eftir fyrstu 18 ferðirnar fór þó að kvikna eitthvað ljós í mínum auma skrokki og þetta fór að ganga betur ...
Annars var helgin hin skemmtilegasta. Á föstudaginn var afmæli hjá Lóu sætu. Ég var ekki búin að sjá hana frá því hún gifti sig í sumar (og ég var víðafjarri í Bosníu). Ég drakk heilu ósköpin af hvítvíni, söng enn meiri ósköp í Singstar og rúllaði svo heim í taxa kl. 5 - takk fyrir það :) Laugardagskvöldið var mun rólegara þar sem ég var að bílast en þá hélt mamma smá fjölskylduget2gether í tilefni af sínu afmæli. Þar fóru allir af kostum í Actionary og við stelpurnar rústuðum strákaliðinu í spilum :Þ Sunnudagurinn fór í að stara á tærnar á mér, Modern Marvels og nammiát. Ég held að þetta allt saman útskýrir þyngslin í sundi í dag.
Í dag spratt ég svo upp eldsnemma (kl.9:30) því það er víst fyrsti skóladagurinn. Sem betur fer ákvað ég að glugga aðeins í tölvuna mína áður en ég stykki af stað og fékk þar þær upplýsingar að kennarinn væri veikur - þar með engir tímar í dag ! Já svona er þetta, það er víst líka hægt að vera veikur fyrsta daginn í skólanum. Úr því svo var fór ég aftur upp í rúm og hraut til 12:30. Í dag voru svo mikil þrif plönuð en ég datt ofan í eldhúsinnréttingarhönnunarforrit IKEA og eyddi deginum í mælingar og dútl - Ekki það að ég eigi 100þús kall á lausu til að henda upp nýrri innréttingu í eldhúsið mitt. Maður má þó láta sig dreyma :|
Á morgun er það svo bara back to school 2. tilraun. Karlkrúttið er að fara í strákaferð til London næstu helgi svo ég hef híbýlin út af fyrir mig. Kristín ætlar að koma hingað að sjá smá OC á fimmtudagskvöldið. Laugardagskvöldið er svo frátekið fyrir Eydísi því við ætlum að gera eitthvað snellið saman. Fyrir utan það er lífið bara rólegt, skólinn, vinna, skóli, vinna.
Skelli með myndum úr æðislegri göngu sem við mamma fórum í 2004 - Stapatindur
Ótrúlega fallegt og bara rétt stundarkorn frá Hafnarfirði í Krýsuvíkinni.
lunes, 15 de enero de 2007
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

3 comentarios:
Já Íris, við höfum gert margt skemmtilegt saman. Þetta var ganga sem kom virkilega á óvart.
Mamma
hehehehe snilldarblogg :o) Spes að kennarinn geti verið veikur fyrsta skóladaginn...hann er kannski ennþá að fara yfir jólaprófin ;o)hefur vantað smá meiri tíma...
En ég fæ bara gæsahúð að sjá þessar myndir, alveg geggjað :o) Heyrumst fljótlega sæta mín og gangi þér vel í taka 2 í skólanum !
Svona "sand"steinar eru alltaf jafn flottir! Þú verður að draga mig í göngu um leið og það fer að birta aðeins lengur :o)
Publicar un comentario