Ég er að gera mitt besta til að átta mig á því hvað er svona frábært við Prison Break - það bara gengur ekki vel :|
Ég skutlaði Orra og strákunum út á flugvöll rétt fyrir hádegi og ég er strax farin að sakna hans. Ég var farin að sakna hans um leið og ég kom heim úr skólanum og áttaði mig á því að hann væri ekki heima :| Kannski einum of mikið í ljósi þess að hann kemur aftur á mánudaginn :Þ Nú ætla ég bara að njóta þess að hafa íbúðina algjörlega fyrir sjálfa mig :Þ
Fyrsta vikan í skólanum er alveg að verða búin og hefur gengið vel þrátt fyrir að ég sé í raun bara búin að mæta 1 heilan dag :Þ Mér tókst víst að sofa yfir mig í morgun :Þ :/ Á morgun er svo tíminn sem ég er búin að vera að bíða eftir - hugsanlegi lykillinn að framtíð minni ! Nahh aðeins of daramtískt en á morgun er semsagt fyrsti tíminn í Heilsusálfræði : )
Helgin verður líka sú rólegasta. Finnst endilega eins og ég hafi verið búin að lofa mér eitthvað annað kvöld en ég get ómögulega munað hvað það var. Svo er það bara vinna, læra og smá systratími :)
Gn ÍÓ
jueves, 18 de enero de 2007
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

1 comentario:
Það góða við það þegar kallarnir fara í burtu í smá tíma, er að það er alltaf jafn gott að fá þá heim aftur :o) En njóttu þess að hafa íbúðina út af fyrir þig og hafðu það gott ! Við heyrumst sæta :o)
Publicar un comentario