martes, 9 de enero de 2007

4 vikur liðnar frá fyrsta og eina prófinu sem ég á eftir að fá úr - Ég er orðin ansi óþolinmóð :| Þetta bara á að vera komið, þvílík mannvonska að láta mann bíða svona : / Í ljós hefur komið að ég er bara ekki með neina kinnholusýkingu heldur er ég með hina alræmdu vöðvabólgu sem er svo slæm að mér er bókstaflega illt í öllu höfðinu og andlitinu :S Stuð að vera í sálfræði ! Þar sem skólabækurnar mínar eru ekki enn komnar til landsins eða til í bóksölunni þá ætla ég í staðinn fyrir að fara að læra eins og planið var, að horfa á einn Despó og lita svo á mér augnhárin ! Gott plan fyrir daginn ekki satt :) Það eru allir byrjaðir í skólanum eða að vinna og ég bara veit varla hvað ég á af mér að gera þessa dagana. Fyndið samt að þegar það er varla laus stund í lífi manns þá nýtir maður þær fáu í að gera eitthvað sem mann hefur lengi langað að gera en þegar það eru ekkert nema lausar stundir (og maður er bíllaus) þá situr maður bara með tærnar út í loftið. Best að njóta þess næstu 6 dagana því svo er þessu lokið - það er ekki einu sinni svona rólegt að vera í sumarfríi. Þessi síða styttir mér þó stundirnar þessa dagana: Damn interesting

1 comentario:

Anónimo dijo...

Um að gera að njóta þess að eiga smá frí, sama hvað maður fer að gera :o) En já ég er alveg gáttuð á þessum vinnubrögðum hjá kennurunum þínum, ætli þeim leiðist ekkert að hafa þetta hangandi yfir sér í fleiri fleiri vikur ???? Skrýtið...en ég hlakka til að hitta þig á morgun sæta, vona að þú hafir átt brilljant dag :o)