Fyrst ég var svona dugleg að blogga tvisvar í gær verð ég þá ekki að minnsta kosti að blogga einu sinni í dag :Þ
Fátt merkilegt að gerast hérna á Rauðarárstígnum, nefið lítur varla upp úr bókunum, glósunum, tölvunni eða hvar sem námsefnið er. Tók á það ráð í dag að lesa bara allar glósurnar upphátt fyrir sjálfa mig - hefði átt að detta það fyrr í hug því það virkar assskoti vel.
Bakið á manni er þó orðið ansi ósátt við alla þessa setu og lélegu stellingar býst ég við því ég er að drepast á milli herðablaðanna - er nú orðin ansi vön því, þetta virðist gerast alltaf þegar ég fer í lokapróf í sálfærði :Þ
Skellti mér þó í sund í dag og synti mína 1100 metra. Sundlaugin gamla er svo æðisleg, mér dettur ekki í hug að nenna ekki þangað :Þ
Annars var allt rafmagnslaust þegar ég kom heim úr sundinu, hér er það þó svo skrýtið að rafmagnið fer ekki alveg af heldur var svona oggusmá týra á öllum ljósunum, hefur eitthvað með volt eða whatever að gera :Þ
Við karlinn ætlum að taka okkur smá lestrarpásu annað kvöld, fattaði það að ég fer á miðvikudaginn og þangað til verð ég bara lærandi og lærandi og hann líka svo við ætlum að gefa okkur annað kvöld eftir kl. 20 til að fara saman út að borða á Galbi. Galbi er kóreskur grillveitingastaður þar sme mér skilst að maður steiki matinn sinn SJÁLFUR :Þ Ég svo elska að prófa nýja og frumlega veitingastaði svo þetta ætti að vera skemmtilegt. Það verður þó átak að láta stressið ekki eyðileggja kvöldið, maður virðist ekki geta gert neitt þessa dagana án þess að hugsa í sífellu um það að maður ætti nú frekar að sitja yfir bókunum : /
Jebb 5 dagar í að þessari vitleysu sé lokið og 5 dagar í bústaðinn :) Ég held sönsum þangað til :Þ
ÍÓ Út
viernes, 15 de diciembre de 2006
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

1 comentario:
Þetta er alveg snilldar aðferð við að læra fyrir próf er að lesa upphátt og tala við sjálfan sig...samt verður maður að passa sig að minka það svo þegar prófunum líkur, annars getur maður orðið sér til skammar... (ein með reynslu ;o)hehehehe...)
Gott hjá ykkur að líta aðeins upp úr bókunum, um að gera. Annars síast ekkert inn og maður verður svo samofin þessu að maður veit hvorki í þennann heim né annann ! Vona að þið hafið átt notalegt kvöld :o)
Publicar un comentario