lunes, 4 de diciembre de 2006

Til hamingju með afmælið Kristín : )

ÞÚ sem er búinn að dingla á bjöllunni minni (og held ég flestra annarra í húsinu) fyrir kl.7 á morganna og svo kl.2 í nótt færð bráðum skó í hausinn !!! Veit ekki hvur djöfullinn er í gangi, heyrðist þó eins og e-r hleypti manneskjunni inni í nótt - ég heyrði dinglað á þremur bjöllum : / Ég ætla rétt að vona að það sé enginn í húsinu að díla ! Þó nokkuð af nýjum nágrönnum sem ég veit ekkert um ! Þetta var sérstaklega óvinsælt í gærmorgun þegar það var dinglað kl. 6:20 og BJALLAN FESTIST INNI !!!! Orri þurfti að hlaupa niður til að stoppa lætin. Mér finnst samt eins og að á þessum tíma sem við höfum búið hérna þá hafi lætin verið að aukast á þessum enda Laugavegarins um helgar. Ég held að þetta séu mest krakkar sem hafa ekki aldur til að vera í bænum og því eru píkuskrækirnir og machostælarnir eftir því :/ Enginn róni þó búinn að æla fyrir utan dyrnar í marga mánuði og engar hasspípur fokið framhjá í rokinu - það er framför :Þ Dagskráin í dag Lesa Fara í sund Lesa Þrífa baðherbergið Lesa Skila skýrslu Elda Lesa Lesa Stuð ekki satt - bless Í bili

1 comentario:

Anónimo dijo...

Takk :)
En talandi um sund... hvernig væri það að við byrjuðum aftur á því að fara reglulega að synda??? Endilega bjallaðu í mig ef þig vantar félagsskap í sund, ég er örugglega næstum alltaf til :)