Í eina og hálfa viku hef ég varla gert neitt annað en að stara á bækurnar mínar og tölvuna til skiptist. Mér finnst alltaf vera dimmt og ég veit sjaldnast hvað klukkan er. Ég get ekki beðið eftir því að komast í jólafrí ! Mig langar í plokkun, fara úr íþróttabuxunum, gera mig sæta og fína og hitta eitthvað fólk, bara eitthvað fólk - því einu samskipti mín við umheiminn þessa dagana eru í gegnum msn : / Bara 6 dagar í viðbót - bara 6 dagar af magapínandi stressi þar sem ég er alltaf viss um að ég muni aldrei ná að komast yfir þetta allt fyrir prófið, hvað þá læra þetta allt ...
guð hvað þetta verður gott frí !
Hlustaði á Kósíheit par exelans áðan og mundi þá að það eru að koma jól, svo er ekki að sjá hvorki hérna heima né á lögguplaninu sem er hið frábæra útsýni sem ég hef.
Orkuskot á alla sem enn eru í prófalestri !
Íris (sem er svo ekki að nenna meiru)
jueves, 14 de diciembre de 2006
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

No hay comentarios.:
Publicar un comentario