Gleðilegt nýtt ár
Íris Eyrnabólga
domingo, 31 de diciembre de 2006
Áramótablögg2006
Er ekki viðeigandi á síðasta degi ársins að líta yfir farinn veg:
Árið2006
Nokkuð viðburðaríkt en þetta var þó furðu róleg sigling :) Fyrstu 5 mánuði ársins naut ég lífsins sem spænskunemi ;) Var með stór loforð um áramótin síðustu að taka skólann af svaka krafti en eftir að geta ekkert mætt i skólann allan fyrsta mánuðinn út af eyrnabólgudjöfli þá var ég bara löt til enda :Þ
Sumarið var svo algjör draumur í dós - gaman að geta sagt að á árinu 2006 hafi ég látið stóran draum rætast :) Eftir 2 mánuði á ferðalagi var síðan svo gott að koma heim, sjá Orrann minn og sofa aftur í rúminu mínu :Þ
Sálfræðin tók svo við um haustið. Það tók mig laaangan tíma að finna mig þarna aftur en það hófst fyrir rest :) Eyddi svo öllum mínum kröftum í lok annarinnar í að hífa mig upp úr þessum skurði sem ég hafði grafið mér en ég er bjartsýn á að þetta hafi allt farið vel :)
Núna á síðasta degi ársins er ég glöð og sátt við lífið, komin með eyrnabólgu AFTUR nákvæmlega ári frá því ég fékk hana síðast og ég ætla rétt að vona að hún verði ekki eins þrautseig og síðast !
Hvað áramótaheit varðar þá hef ég enga trú á þeim andskota og set mér frekar heit á öllum öðrum tímum árs !
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

No hay comentarios.:
Publicar un comentario