domingo, 31 de diciembre de 2006

áramótabögg2006

Það stefnir í sorglegustu áramót sögu minnar - með eyrnabólgu á báðum, hita og stútstíflaðan haus gerir maður víst ekki mikið af sér :/ Eins og staðan er í augnablikinu er ég búin að drösla mér í mitt fínasta púss, gafst upp á því að ætla til Keflavíkur og ég get ekki ímyndað mér að vera ein heima hjá mér undir sæng á áramótunum - myndi reyndar alveg fíla það ef að íbúðin mín væri ekki algjörlega í rúst og því ekkert gaman að vera hérna : / Það lítur út fyrir að ég kíki aðeins með Orra heim til foreldra hans, fái kannski smá að borða og fari svo bara snemma heim í bælið :S Ég vil ekki heyra neinar hjátrúr um að það hvernig maður hefji nýtt ár setji línuna fyrir árið -glætan !

No hay comentarios.: