miércoles, 6 de diciembre de 2006

Ithink

Próf próf próf Próf próf próf Jebb hvað getur maður sagt skemmtilegt þegar maður starir bara á bækurnar allan daginn - Jahh kannski ekki allan daginn því ég varð auðvitað að taka niður allann þvottinn sem ég þvoði í gær og tók btw 6 snúrur niðr'í kjallara og svo var ég búin að dreifa úr nýþvegnu tuskunum út um alla íbúð :Þ Já tuskurnar - þegar ég setti þær í vélina í gær þá ákvað ég að skella með ljósbláu laki og fleiri svona í ljósbláum dúr svona bara til að spara tímann. Ég hugsaði að lakið væri svo ljóst að það myndi nú ekkert lita. Hmmmm núna á ég 20 ljósbláar tuskur :Þ Í dag eru 2 vikur í jólabústaðinn :D og þá semsagt líka 2 vikur í síðasta prófið mitt : / Úff ég get ekki hugsað svona langt, ég á nóg bara með þetta fyrsta próf. Mér finnst þó ég hafi verið búin að lesa alla bókina að þá sé ég að frumlesa allt efnið því ég mætti varla í þessa tíma alla önnina : / Eftir það próf hef ég 6 daga fram að hugfræðinni sem er næsta næsta prófi og svo er 2 dagar á milli hugfræðinnar (þess næst síðasta) og Félagslegu sálfræðinnar (þess síðasta) ... Úff ég svitna bara í lófunum af stressi við það eitt að skrifa þetta : O Anda inn anda út Fyrst að maður er að aga sig þessa dagana til að sitja og lesa þá ákvað ég að nú væri rétti tíminn til að fara að mæta aftur í jóga - Ég skil aldrei þegar ég mæti af hverju í fja***** ég tek svona letitímabil og mæti ekki nett, ég held að það sé bara ekkert betra í heiminum en jóga. Svo fékk ég þessa bráðsnjöllu hugljómun á sunnudagskvöldið. Málið er að þegar ég bjó í Hfj. þá synti ég í Suðurbæjarlauginni og líkaði það mjög vel. Svo þegar ég flutti í Reykjavík þá byrjaði ég að synda í Laugardalslauginni en ég bara fíla ekki laugina - 50m laug, langt að labba að sundlauginni og þeir höfðu þann leiða vana þá að salta klakann með GRÓFU salti Eníveis hugljómunin var sú að fara í Sundhöllina og synda þar, hún er miklu nær. Svo fór ég á mánudaginn og ég svíf á sæluskýi, mmm besta sundlaug ever :) svo núna getur maður loksins farið að synda aftur. Það er þó kostur og ókostur að þarna er bara innilaug; fínt að þurfa ekki að vera úti í frosti og vonda veðrinu en í staðinn fær maður engann lit :Þ Farin að lesa próffræði Domo arigato

2 comentarios:

Anónimo dijo...

Merkilegt hvaða áhrif það hefur á mann hvar maður elst upp. Mér finnst 25m laugar einmitt svo óþægilegar, það þarf alltof margar ferðir fyrir hverja 100m ;) En ég er sammála þessu með saltið, mjög óþægilegt! En aftur, þá er ég ansi vön því eftir mörg ár af skólasundi í öllum veðrum...

Íris dijo...

Hehe já mér finnst nefnilega miklu skemmtilegara að fara fleiri ferðir, þá er maður alltaf að telja ;) :Þ