sábado, 16 de diciembre de 2006

one little riddle

Ég gleymi aldrei töffaranum sem mætti eitt sinn í Smárabíó á LOTR rétt áður en myndin átti að byrja. Á þessari sömu sýningu voru 10-15 manns sem nota hjólastóla og þau höfðu mætt xtra snemma til að geta fengið efstu sætin því það eru engar tröppur að þeim. Hann fór inn í sal og kom út aftur brjálaður af því að það voru bara laus sæti í fremstu röð. Hann heimtaði að við myndum FÆRA lamaða fólkið ! Ég sagði honum að hann gæti labbað út eða farið aftur inn og sest þar sem væru LAUS sæti - hann var ekki sáttur en fór og horfði á myndina Jebb sumt fólk er FÍFL Galbi - ekki fá ykkur grænmetisréttinn : / Þetta var ekkert spes. Íris sem á enn eftir að læra helling fyirr prófið á mánudaginn :|

2 comentarios:

Anónimo dijo...

Ótrúlegt hvað fólk getur verið dónalegt, maður verður alveg orðlaus yfir svona hegðun !
Gangi þér vel með lesturinn í dag sæta :o)

Anónimo dijo...

Já mig rámar í þessa sögu - sumir eru bara svooooo sjálfhverfir að það hálfa væri nóg !!!