Ó nei ég held að heilinn minn sé að brenna YFIR
Ég er að læra og læra og læra og læra fyrir próffræðiprófið en eins og kallinn spyr út úr þessu þá er ALLT til prófs. Á gömlu prófi sem ég var að skoða þá er t.d. eins spurning um mann sem er bara fjallað um á 7 línum ! 7 línur af 565 blaðsíðum af lesefni !
Ég er að reyna að hugsa sem MINNST um að vera að fara í próf og bara sem MEST um að læra bara og læra.
Það var líka bara allt í einu eins og öll einbeiting og orka hefði flogið út um gluggann því ég stend varla í fæturnar fyrir þreytu og hreinlega get ekki beðið eftir því að þessi vinnudagur verði búinn svo ég geti farið heim og farið svo snemma að sofa
Því miður allt of lítill lestur í dag : / sem er ekki gott þar sem ég hef ekki mikinn tíma á morgun þar sem ég er að fara í aðventuboð hjá mömmu og pabba og ég tími sko ekki að sleppa því :) Fæ alltof sjaldan tækifæri til að vera með stórfjölskyldunni minni !
Íris sem er með tár í augunum eftir alla geispana
viernes, 8 de diciembre de 2006
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

No hay comentarios.:
Publicar un comentario