martes, 5 de diciembre de 2006

Klassísk raungildiskenning

Það er greinilega prófatími því ég er búin að
  • Þvo 8 vélar af þvotti (og núna er ekkert meira eftir að þvo)
  • Brjóta saman og ganga frá 4 vélum af þvotti
  • Kaupa í matinn (í 3 mism matvöruverslunum)
  • Fara í apótekið
  • Kaupa blekhylki í prentarann
  • Taka til í svefnherberginu
  • Skipta um sængurföt
  • Snurfusa baðherbergið
  • Skipuleggja bókhaldið
  • Taka til í stofuskápunum
  • Fara í gegnum snyrtidótið og henda
Jebb síðasta vélin er að þvo núna og þá held ég að ég hafi bara EKKERT meira til að þrífa og neyðist þá til að sitja yfir bókunum næstu vikuna : ) ég fæ þó að gera það í glansandi hreinni íbúð :Þ Spakmæli dagsins: Hin sanna rausn gagnvart framtíðinni er að gefa allt í núið. Á vel við á prófatíma ! Jæja best að halda áfram að lesa um Mat á áreiðanleika - svo er það bara jóga á eftir :)

2 comentarios:

Anónimo dijo...

Híhí, allt er betra en að lesa undir próf ;)

Anónimo dijo...

Ég held að það sé af hinu góða að taka smá til í kringum sig áður en maður dembir sér í lesturinn, af því að þá er ekkert að trufla mann, og andrúmsloftið í kringum mann verður líka betra. Þess vegna er alltaf gott að fá smá Moniku Geller syndrom áður en maður hefst handa við lesturinn...
En takk fyrir lunch í gær :o) Vona að próflesturinn gangi vel hjá þér í dag :o) *knús* Bekka