Jólin 2006 búin og áramótin alveg að sigla í höfn
Ég verð að viðurkenna að ég er smá jólablue - verð alltaf svolítið blue þegar eitthvað sem ég hef lengi hlakkað til er komið - og farið. Bústaðarferðin var æði að vanda :) sakna fjölskyldunnar minnar nú þegar (c þau þó á morgun :Þ)
Jólin liðu í lakkrístoppaáti, pottaferðum, göngutúrum og mikilli spilamennsku :)
Jólagjafirnar sem ég fékk hittu svo sannarlega í mark :D
Sumir hlustuðu ekki á það heillaráð mitt að betra væri að ráðfæra sig við aðra fjölskyldumeðlimi um hvað þeir hefðu keypt handa mér svo ég fengi nú ekki bara það sama frá öllum - allir voru nefnilega með sama gjafalistann. Og viti menn núna á ég 3 Ipoda ! og hann var þannig séð tæknilega ekki einu sinni á listanum - var bara inn á drauma mig langar alltaf í svona dót listanum :Þ
Semsagt ég fékk það sama frá mömmu og pabba og Orra :Þ
Orri gaf mér svo guðdómlega þægilegar náttbuxur sem smellpössuðu við gruuuví nýju ullarsokkana mína frá ömmu hans :Þ Mamma og pabbi voru síðan svo góð við okkur Systurnar á Gullfossi að þau gáfu okkur geggjaðar 66°N loðhúfur (I'm in love)
Annað merkilegt af pakkamálum að frétta þá fékk ég: rúmföt, bók, blandara, vefmyndavél og 2 gjafamiða í leikhús. Síðan var kertasníkir svo góður að gefa mér æðislegan slopp frá Helsinki ;) saman með náttbuxunum og ullarsokkunum þá var þetta aðaláttfittið um jólin :Þ
Eins og mér er einni lagið þá gat ég náttúrulega ekki annað en tekið stresskast strax í dag ! : | Jólin varla búin og þá fer ég að hafa monníworries :S Ekki af því ég spreðaði um of um jólin (hef aldrei verið jafn hagsýn og í ár :Þ) - nei janúar er ekki góður mánuður fyrir námsmenn :S Það koma lítil sem enginn laun frá desembermánuði (sumir stinga nefnilega af upp í bústað beint eftir prófin :Þ) , bókakaup upp á rúmlega 30þús kall og svo eru jafnvel einhverjar námslánasyndir sem þarf að borga til baka : /
En bráðum kemur betri tíð með blóm í haga - Febrúar er alltaf betri :)
Ég hef engar einkunnafréttir - því það eru engar einkunnir komnar í hús !
Þetta er alltaf jafn cruel : / Engar einkunnir, refreash takkinn eyðist bráðum upp, námslánin koma ekki inn fyrr en um síðir og maður fær ekki að losna við stressið ! Hvurn fjandann hafa þessi kennarar að gera við 4 vikur til að fara yfir prófin ! Hvernig væri bara að bretta upp ermarnar og hugsa um andlega heilsu og efnahag nemenda sinna, rifja upp hvað þeim sjálfum fannst leiðinlegt að bíða eftir einkunnum þegar þeir voru í skóla, og bara drífa þetta af !
Engar myndir komnar enn - var hundslöpp þegar ég kom úr bústaðnum í gær og ekki lagaðist það við reiðikastið sem ég tók þegar ég kom heim og þurfti að byrja á því að þrífa íbúðina mína eftir svínin sem höfðu eytt tíma sínum þarna í fjarveru minni - KARLMENN ! Minn heitelskaði misreiknaði sig víst aðeins og bjóst víst ekki við mér fyrr en um kvöldið ! Grrr
En ég skal reyna að setja inn smá jólajólamyndir í kvöld eða á morgun :)
Annars eru frekar óspennandi áramót að líða upp hjá mér:Þ Eftir vinnu á morgun (þarf btw að mæta kl. 7 um morguninn !) ætla ég að skella mér í mitt fínasta púss og bruna í Keflavíkina til að borða með stórfjölskyldunni :) Seinna um kvöldið, líklegast fyrir miðnætti ætla ég svo að bruna í Fjörðinn og vera á hápunkti kvöldsins hjá fjölskyldunni hans Orra. Hvað gerist næst er óráðið en að öllum líkindum verður það bara rúmið góða og svefninn ljúfi því ég þarf að mæta í vinnu kl. 8 á nýársmorgun þar sem ég verð með morgunmat og tek vaktina til kl. 14. Seinna á nýársdag verður svo farið í nýárshangikjöt til mömmu og pabba :)
Held ég láti þetta vera gott sem jólabloggið í ár - á svo eftir að skrifa gamlársblogg og fara yfir allt hið stórmerkilega sem ég gerði á árinu 2006 ;)
Íris Pétur
sábado, 30 de diciembre de 2006
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

1 comentario:
Ég veit akkúrat hvaða loðhúfu frá 66°N þú ert að tala um, ég er líka ástfangin af þeim, þær eru ÆÐI! ;o)
Publicar un comentario