Nú er loksins farið að koma að þessu - 2 dagar í fyrsta prófið :)
Ég get eiginlega ekki beðið eftir því að klára þetta próf. Eftir það hefst svo svaka törn fram til 18. des þar sem ég þarf að læra fyrir 2 stór próf í einu : /
Ég veit ekki hvað ég var að spá í allan vetur en það er nokkuð ljóst að næsta önn verður ekki svona. Ég er skráð í 21 einingu svo það verður bara enginn tími fyrir slugs. Ég er líka í svo skemmtilegum námskeiðum og mig hlakkar svo til :Þ Ég er að fara í Skynjunarsálfræði, Þroskasálfræði og Heilsusálfræði (sem er náttúrulega alveg frábært :)) Fyrir utan þetta er ég svo að fara að skrifa BA-ritgerðina mína :/ Mig langar svo að vinna með einhverjum en ég er enn félagalaus. Planið er að taka fyrir eitthvað úr heilsusálfræðinni :Þ
Annars er ég búin að nýta þennan prófalesturstíma til að plana utanlandsferðir næsta árs - Er þetta ekki besti tíminn til þess :Þ Núna er það eiginlega komið fast að ég fer til Venezuela annað hvort um miðjan júlí eða í byrjun ágúst og ég ætla að vera 3-6 vikur.
Svo er ég búin að ákveða að skella mér einhverja helgina milli feb-apríl til Noregs að heimsækja Per í Osló. Það er svo ódýrt þarf bara að borga flugið og svo mat :)
Annar í aðventu og jólaskrautið mitt er enn læst inni í geymslu - Lykillinn er týndur svo ég bara kemst ekkert inn þannig kannski verður bara ekkert jólaskraut hjá mér þessi jólin. Ég skreyti bara bústaðinn enn betur í staðinn :Þ
Farin í sund

1 comentario:
hehe, sniðug ertu að týna lyklinum að geymslunni ;)
Publicar un comentario