miércoles, 20 de diciembre de 2006

I walk the line

JÓL
LOKSINS Loksins Loksins Prófin búin og það sem meira er þá gekk mér bara furðu vel :D Prófið í dag fór líka mun betur en ég hafði þorað að vona og ég held ég gati alveg sagt með 100% vissu að ég muni ná :Þ Ég býst við og vonast eftir milli 6-7 í öllum fögunum. Allt yfir 7 væri ÆÐISLEGT en ólíklegt þar sem vinna mín yfir önnina var með lélegara móti :/ Allt undir 6 mun ég vera ósátt við því ég er búin að vera svo hrikalega dugleg að læra fyrir prófin - Nú er bara að sjá til hvað gerist Grey Orrinn minn, á eftir 2 próf á næstu 19 klst :/
----------------------------------------------------------------------------------
Ég er búin að skrifa jólakort en ég kemst ekki til að póstleggja þau :) Svo Selma, Sylvía, Sigrún og Stefanía (haha var að hafa fjögur S - Lóa mín gleðileg jól líka ;) Gleðileg jól :D Takk fyrir allt gott og frábært á síðasta ári :) Eina manneskjan sem fær jólakort í ár er Rebekka þar sem hún kom með konfekt handa mér ;) (og fékk jólakort í staðinn ;))
Brosið hefur ekki farið af mér frá því ég labbaði út úr prófinu áðan og verður vonandi bara fast á sem lengst : ) Eftir nokkrar klst. fer ég upp í bústað og fæ að hafa það gott í faðmi fjölskyldunnar næstu 9 daga : ) Loksins er komið að því - smá frí : ) Gleðileg jól öll sömul - Njótiði þeirra vel og ekki missa ykkur í jólastressinu : *
Íris sem er komin í langþráð jólafrí :)

1 comentario:

Anónimo dijo...

Elsku Íris ég vona að þú hafir það sem allra best yfir hátíðirnar. Þar sem ég sendi þér ekkert jólakort þá vil ég bara þakka fyrir allar frábæru stundirnar á árinu :o) Hvort sem það var göngutúr í Gróttu, grænmetisréttadinner, kakóbollatjatt eða púl í Bootcamp. Var alveg geggjað ár með þér ! Hlakka til að komast að því hvað við bröllum á nýju ári :o) En enn og aftur Gleðileg jól sæta og njóttu þess sem best að vera í fríi yfir jólin. Sendi einnig fjölskyldu þinni bestu jólakveðjur :o) *knús* Bekkka