JÓL
LOKSINS
Loksins Loksins
Prófin búin og það sem
meira er þá gekk mér bara
furðu vel :D Prófið í dag fór líka
mun betur en ég hafði þorað að vona
og ég held ég gati alveg sagt með 100% vissu
að ég muni ná :Þ Ég býst við og vonast eftir milli
6-7 í öllum fögunum. Allt yfir 7 væri ÆÐISLEGT en
ólíklegt þar sem vinna mín yfir önnina var með lélegara
móti :/ Allt undir 6 mun ég vera ósátt við því ég er búin að vera
svo hrikalega dugleg að læra fyrir prófin - Nú er bara að sjá til hvað
gerist :Þ Grey Orrinn minn,
á eftir 2 próf á næstu 19 klst :/
----------------------------------------------------------------------------------
Ég er búin að skrifa jólakort en ég kemst ekki til að póstleggja þau :) Svo Selma, Sylvía, Sigrún og Stefanía (haha var að hafa fjögur S - Lóa mín gleðileg jól líka ;) Gleðileg jól :D Takk fyrir allt gott og frábært á síðasta ári :) Eina manneskjan sem fær jólakort í ár er Rebekka þar sem hún kom með konfekt handa mér ;) (og fékk jólakort í staðinn ;))
Brosið hefur ekki farið af mér frá því ég labbaði út úr prófinu áðan og verður vonandi bara fast á sem lengst : ) Eftir nokkrar klst. fer ég upp í bústað og fæ að hafa það gott í faðmi fjölskyldunnar næstu 9 daga : ) Loksins er komið að því - smá frí : )
Gleðileg jól öll sömul - Njótiði þeirra vel og ekki missa ykkur í jólastressinu : *
Íris sem er komin í langþráð jólafrí :)

1 comentario:
Elsku Íris ég vona að þú hafir það sem allra best yfir hátíðirnar. Þar sem ég sendi þér ekkert jólakort þá vil ég bara þakka fyrir allar frábæru stundirnar á árinu :o) Hvort sem það var göngutúr í Gróttu, grænmetisréttadinner, kakóbollatjatt eða púl í Bootcamp. Var alveg geggjað ár með þér ! Hlakka til að komast að því hvað við bröllum á nýju ári :o) En enn og aftur Gleðileg jól sæta og njóttu þess sem best að vera í fríi yfir jólin. Sendi einnig fjölskyldu þinni bestu jólakveðjur :o) *knús* Bekkka
Publicar un comentario